Af hverju er svona lítil umræða í gangi um þá staðreynd að við erum að glopra sjálfstæði okkar útúr höndunum? Eða öllu heldur ríkisstjórnin er að því. Hér er skyldulesning dagsins. Lesið fyrst moggagreinina sem hún er tengd við. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir flokkinn: Allt efni
Löggan átti ekkert með að fjarlægja Ástþór
Mér skilst að lögreglan hafi fjarlægt Ástþór og föruneyti hans. Þeir áttu auðvitað ekkert með það. Ástþór hefur alveg sama rétt á að mótmæla og annað fólk og hann má alveg ráða því hvar og hvenær. Að vísu var bæði bjánalegt og ósmekklegt af honum að velja þessa stund og þennan stað en lögreglan átti samt ekkert með að fjarlægja hann.
Ég skil lögguna alveg því ef þeir hefðu ekki stöðvað þessa uppákomu hefðu mótmælendur gert það og hugsanlega hefði komið til átaka. En löggan hafði samt ekki neinn rétt til þess að skipta sér af þessu. Reyndar, ef þeir væru sjálfum sér samkvæmir, hefðu þeir átt að sjá til þess að Ásþór fengi að halda sinn fund óáreittur. Og þá hefði nú aldeilis orðið líf í tuskunum.
![]() |
Fjöldi manns á Austurvelli |
Ekki ólöglegur heldur bjánalegur
Nei Hörður, fundur Ástþórs og þjóðernissinnanna er ekkert ólöglegur. Það er bara mjög bjánalegt af þeim að efna til fundar sem hefur þann tilgang einan að fokka upp andspyrnuhreyfingunni á Íslandi og mann rennir í grun að hvítliðar séu að notfæra sér veikleika Ástþórs.Einkum og sér í lagi er þó hallærislegt af þessum hóp að nota slagorðið ‘sameinaðir stöndum vér, sundraðir föllum vér’, þegar tilgangur samtakanna virðist vera sá að sundra mótmælendum.Ég hef ekki áhyggjur af því að þessi uppákoma setji stórt strik í reikninginn. Frekar að hún trekki að því það er alltaf gaman af jólasveinum.
![]() |
Fundurinn ólöglegur? |
Við nánari umhugsun er þetta ansi snjallt
![]() |
Nýta lýðræðislegan rétt sinn |
Lögreglan er í fjári erfiðri aðstöðu. Það þarf ekki leyfi fyrir svona fundum og í raun á hlutverk lögreglunnar að vera (eins og þeir hafa tönnslast á) að sjá til þess að mótmælendur fái að koma boðskap sínum áleiðis. Samkvæmt því ber lögreglunni að tryggja Ástþóri og félögum vernd og næði til að setja upp sinn ræðupall.
Nú verður lögreglan annaðhvort að taka afstöðu með eða á móti ákveðinni hreyfingu eða skapa aðstæður sem bjóða beinlínis upp á að fylkingum slái saman.Þetta verður áhugaverður dagur.
Borgarastyrjöld í uppsiglingu?
Ætla semsagt tvær hreyfingar að vera með ræðuhöld á sama stað og sama tíma? Er samvinna á milli þeirra eða er þetta sérstaklega gert til þess að gera lítið úr fundum Radda fólksins? Ég vona að svo sé ekki.
Það eru 7 dagar í vikunni, 24 klst í sólarhringnum og því ætti öllum hópum sem áhuga hafa að gefast tækifæri til að tala á Austurvelli.Manni dettur helst í hug að þetta eigi að vera svar hvítliða við andspyrnunni. Mér finnst ótrúlegt að það séu óánægðir andstæðingar ríkisstjórnarinnar sem standa fyrir því að halda fund á sama tíma og Hörður Torfason og co, því jafnvel róttækustu anarkistar á Íslandi, fólk sem hefur enga trú á að hefðbundin mótmæli skili árangri, hafa sýnt Röddum fólksins þá virðingu að mæta á fundi þeirra í samstöðuskyni og aldrei hafa aðgerðasinnar farið í harðar aðgerðir á meðan á þessum fundum stendur eða í beinum tengslum við þá.
Ég trúi því ekki að nein alvöru andspyrnuhreyfing sé svo vitlaus að fara í stríð við Raddir fólksins.
Þessi dagur gæti orðið upphafið að borgarastyrjöld.
![]() |
Nýjar raddir boða fund |
Í áttina
Í fyrsta sinn í mjöööög langan tíma er ég dálítið stolt af ákvörðunum ráðamanna. Hver sem hefur tekið þessa ákvörðun er meiri manneskja í mínum augum fyrir vikið.
Og svo þurfum við bara að skera á öll pólitísk og viðskiptaleg tengsl við hina Gvuðs útvöldu þjóð. Það ætti ekki að vera erfitt. Ef samningurinn um EES stendur í vegi fyrir því, þá eigum við að rifta honum einhliða og vera snögg að því.
![]() |
Heimsókn Ísraela til Íslands afþökkuð |
Fyrir hvern halda menn að lögreglan sé?
Landhelgisgæslan er dæmi um löggæsludeild sem hefur það hlutverk að þjóna hagsmunum almennings. Gæta fiskimiða og sækja sjúka og slasaða. Ég veit ekki til þess að gæslan þjóni á neinn hátt því hlutverki að verja völd ríkisstjórnar og stofnana gegn almenningi, svo það er rökrétt að ráðast á gæsluna. Halda áfram að lesa
