Að mörgu þarf að huga þá er unga konan hyggst stíga sín fyrstu skref á braut ástalífsins. Meðal þess sem hún þarf að læra, er að varast viðsjárverða menn sem kunna að hafa vafasöm áform. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir flokkinn: Allt efni
Bókmenntafræði, rassvísindi og trompetrannsóknir
„Ég held að sum skáld og aðrir listamenn séu bara að djóka. Framleiða eitthvert bull sem lítur út fyrir að vera merkilegt, aðallega til að hafa fræðimenn að fíflum“ sagði ég. Kennarinn hafði enga trú á því að aðrir en augljósir asnar gætu sýnt listinni hvílíkt virðingarleysi.
Feðraveldi Siðmenntar?
Árið 2011 mótmæltu feministar kynjahalla Kiljunnar. Ég spurði ítrekað hvaða konur hefðu verið sniðgengnar. Einu svörin voru „barnabókahöfundar“ og „Guðrún frá Lundi“. Þegar ég benti á þetta nefndi einhver kvenrithöfund sem hafði ekki gefið út bók í 5 ár. Annar taldi að Þórdís Gísladóttir, sem var boðin í þáttinn, hefði verðskuldað meiri athygli. Ingunn Snædal var eina konan sem með nokkurri sanngirni hægt að segja að hafi verið sniðgengin.
Nú er kynjabias Siðmenntar gagnrýndur. Ég get nefnt mannréttindakonur en man enga sem ég tel verðugri en Jón Gnarr. Hún kann þó að vera til. Ég hef beðið um tillögur en ekkert svar fengið.
Svör Sundstofu og fleiri orð í belg
Í gær undraðist ég stofnun sérstakrar „Sundstofu“ og fyrirhugaðar rannsóknir á hennar vegum, sem áætlað er að verði gerðar í kjölfar könnunar á vef Þjóðminjasafns. Valdimar Tr. Hafstein, talsmaður Sundstofu er í vinnuferð (ekki þó við sundrannsóknir) en hefur þrátt fyrir annir gefið sér tíma til að svara hluta þeirra spurninga sem ég beindi til hans. Kann ég honum bestu þakkir fyrir skjót viðbrögð þótt enn sé mikilvægum spurningum ósvarað. Halda áfram að lesa
Sundstofa?
Vísindin efla alla dáð, segja þeir. Það gladdi mig því ósegjanlega að sjá þessa frétt (Fréttablaðið, 25. okt. 2013, bls. 6) af nýrri vísindastofnun; Sundstofu.
Verður kartöflurækt einokuð?
Í gær benti ég á þvæluna í þeim sem flokka hvern þann sem marxista, sem telur kapítalismann vinna gegn lýðræði og frelsi.
Í þessu viðtali er fjallað um fyrirhugaða plöntulöggjöf Evrópusambandsins; reglur sem hætta er á að hefti frelsi almennings til þess að stunda jafn áhættulausa og sakleysislega iðju og matjurtarækt. Þetta er einmitt dæmi um það hvernig kapítalisminn snýst beinlínis gegn viðskiptafrelsi og maður þarf ekki að vera sérstakur aðdáandi „samsæriskenninga“ til að gruna að slíkar reglur séu settar með hagsmuni stórfyrirtækja að leiðarljósi. Halda áfram að lesa
Eððú sért ekki með okkars í liði…
Lýðræði, eins og það er ástundað í okkar samfélagi, merkir að fjöldinn felur stjórnmálaflokkum að setja lög. Lögin eru svo mótuð eftir hagsmunum flokkseigenda sem einnig hafa umtalsverð áhrif á það hverjir veljast í valdastöður. Mikið lifa þeir í litlum og þröngum heimi sem álíta að hver sá sem ekki er hrifinn af þessu fyrirkomulagi vilji endilega koma á marxisma. Ég þekki persónulega einn mann sem hefur áhuga á að koma á samfélagi sem mótað er eftir marxískri fyrirmynd. Einn. Og vinir hans hía á hann. Halda áfram að lesa