Hollráð um sölumannstækni

Ég held að það vanti eitthvað inn í tilfinningaskalann hjá mér. Er það ekki merki um að maður sé að verða of raunvísindasinnaður þegar stefnumót verður hvorki fugl né fiskur og maður lítur svo á að enn einn vinudagurinn sé búinn og nú sé pása til morguns.

Ef maður fer heim án væntinga, án gleði ekki með neitt dramakast í farteskinu heldur og segir sjálfum sér að í allri sölumennsku megi gera ráð fyrir að fá 9 nei á móti einu jái og því sé algerlega óréttlætanlegt að fara í fýlu yfir kærastaleysi fyrr en maður er búinn að fá 9 nei, jafnvel fleiri ef duttlungafullar fyrrverandi hjásvæfur eru í úrtakinu; Halda áfram að lesa →

Skírlífur, Eilífur og Saurlífur

Vinur minn Skírlífur hefur bara ekkert haft samband. Kannski heldur hann að ég sé ekki þessi eina sanna. Ojæja, hann hefur frest alveg fram á miðvikudag greyskinnið, af því að hann er yngstur og fallegastur af þessum fjórum sem fylla markhópinn.

Eilífur hringdi hinsvegar á slaginu 9:30 í gærmorgun og vildi fá að vita hversvegna hann væri í úrtakinu.
-Af því að þú tilheyrir þeim fámenna hópi einhleypra karla sem er hvorki á framfæri Félagsþjónustunnar né í sárum eftir síðasta samband, svaraði ég og það virtist falla í kramið því hann bauð mér út að borða í kvöld. Halda áfram að lesa →

Frí

Sunnudagur og ég er í fríi. Næstum búin að gleyma hvernig það er. Svaf út í morgun, alveg til 7:30 og sökum ofvirkni minnar tók ekki nema 5 klst að þrífa íbúðina. Herbergi yngissveinsins er að sjálfsögðu undanskilið enda húsagaþátturinn Allt í drasli á dagskrá sjónvarpsins í kvöld og standa vonir til að snertirinn hræði drenginn til að moka aðeins undan rúninu og ofan af hillunum. Halda áfram að lesa →

Hjálpsamur yfirmaður

Eigandinn setti upp geiflu sem var einhversstaðar miðja vegu milli glotts og kátínubross þegar við hittumst á Nesjavöllum í gær. Kvaðst hafa lesið bloggið mitt og bauðst til að útvega mér nokkur símanúmer.

Ég veit nú ekki alveg hvort maður á að stóla á árangur af því. Eða hvernig hljómar þetta:
-Sæll Gísli/Eiríkur/Helgi, Eva heiti ég. Yfirmaður þinn las á blogginu mínu að ég væri að leita að fallegum hálfvita og gaf mér símanúmerið þitt. Ég var svona að velta fyrir mér hvort þú hefðir áhuga á að mæta í viðtal.

Allt í drasli

Ég ætlaði eiginlega að fagna þessum fyrsta frídegi frá páskum með því að gera ekkert af viti en sé ekki alveg fram á að það gangi upp. Ég hef tekið eftir því að á meðan ég er að heiman vex þvottur í óhreinatauskörfunni og tölvan mín dregur ekki að sér ryk eins og aðrar tölvur, heldur framleiðir hún það. Spurning hvort sé ekki hægt að græða eitthvað á því, stofna rykgerðina ehf.

Þegar Darri var lítill þurfti ég aldrei að ryksuga. Hann var nefnilega alltaf skríðandi í gólfunum og hann átti flíspeysu sem hann var mjög hrifinn af og hún dró að sér öll hundahárin og rykið. Á tímabili stofnaði ég fyrirtæki í kringum hann. Það var fyrirtækið Hárfinnur ehf. Darri var eini starfsmaðurinn og hafði ég töluverðar aukatekjur af því að leigja hann út. Svo kom fulltrúi barnaverndarnefndar í heimsókn og benti mér á að það samræmdist ekki samþykktum EES að láta börn skríða í gólfunum og draga að sér ryk og gæludýrahár í hagnaðarskyni. Fulltrúinn skipaði mér líka að þvo peysuna. Þá grét Hárfinnur og úrsurðaði peysuna ónýta. Síðan hef ég þurft að ryksuga sjálf og það í frítíma mínum. Svona er lífið erfitt.

Fuglasöngur

Mikið er nú dásamlegt að vakna við fuglasöng í stofunni. Sérstaklega eru það þessi háu, hvellu hamingjuóp sem gleðja mig. Ég er að hugsa um að leyfa reykingar inni hjá mér í von um að helvítið fái lungnakrabba.