Jón Magnússon fullyrðir að ólöglegir innflytjendur fái 215 þúsund krónur í dagpeninga á mánuði og Pressan lepur þessa speki upp án þess að sýna minnstu viðleitni til að fá þetta staðfest eða leita skýringa á því hversvegna ólöglegir innflytjendur fái hærri greiðslur en löglegir borgarar. Halda áfram að lesa
Greinasafn eftir:
Af hverju er það ekki sjúklegt?
Þegar ég var 12 ára fór ég í megrun. Ég var í heimavistarskóla og þekkti sjálfa mig nógu vel til þess að vita að ég myndi ekki standa við nein áform um að fá mér bara einu sinni á diskinn eða sleppa sósunni. Ég er gefin fyrir róttækar aðgerðir og mín lausn varð sú að sleppa því bara algjörlega að borða. Ég komst upp með það í tvo daga. Þá kom skólastjórinn til mín og spurði hvort ég væri veik. Hann var ósköp almennilegur en gerði mér grein fyrir því að hvort sem ég væri of feit eða ekki, liti hann á það sem merki um veikindi ef barn fengist ekki til að nærast og hann myndi því neyðast til að biðja foreldra mína að koma mér undir læknishendur ef ég borðaði ekki. Halda áfram að lesa
Byrjuð á hreinsikúr
Líkaminn er ótrúlega fullkomin vél. Býr yfir allskonar sjálfvirkum kerfum sem sjá um að halda öllu í jafnvægi, allavega ef maður hegðar sér ekki þeim mun heimskulegar. Við þurfum t.d. aldrei að hita eða kæla blóðið í okkur, líkaminn sér bara um það sjálfur. Svo fremi sem maður forðast að stökkva í jökulár eða sofa eftirlitslaus í gufubaði. Halda áfram að lesa
Ekki lengur svalur forseti
Ólafur Ragnar er sumsé ákveðinn í að halda áfram. Og alveg búinn að gleyma því að hann bauðst til þess af göfuglyndi sínu að sitja tvö ár í viðbót. (Einar Karl kjarnhreinsaði framboð Ólafs hér, jafnvel Lára Hanna hefði ekki skafið jafn snyrtilega utan af honum.) Halda áfram að lesa
Að gleypa sníkjudýr
Að hugsa sér örvæntinguna sem fær fólk til að gleypa sníkjudýr í von um að grennast. Hljómar eins og geðveiki ekki satt? Ég trúi því nú reyndar ekki að þetta sé „vinsæl“ grenningaraðferð en allt er víst til Halda áfram að lesa
Enn einn bullkúrinn
Ég var ekki fyrr búin að pósta síðustu færslu en ég rakst á þetta endemis bull.
Kona sem segist grennast um heilt kg á einni viku með því að vera í megrun þrjá daga vikunnar en borða allan „venjulegan“ mat (hvað sem það nú merkir) hina dagana. Halda áfram að lesa
Þarf ég fitu til að brenna fitu?
Ég hef aldrei verið heilsufrík og ekki fylgst sérstaklega með umræðu um líkamsrækt, næringu og megrun. Þó hef ég ekki komist hjá því að verða hennar vör og stundum heyrt fremur ótrúverðugar staðhæfingar.