Pólitíkin rak upp bofs

bogb

Ég hef tekið eftir því undanfarið að nokkrir moggabloggarar sjá ástæðu til að hnýta í það fyrirkomulag feministahreyfingarinnar að vera með sérstakan karlahóp, fyrir náttúrulega utan stöðugar persónulegar árásir á Sóleyju Tómasdóttur og fleiri duglegar konur.

Ég hef aldrei unnið með feministahreyfingunni sjálf, finnst sumt af því sem þær eru að gera frábært, sumt tilgangslaust og sumum viðhorfum er ég algerlega ósammála.

Mér finnst alveg sjálfsagt að halda uppi málefnalegri umræðu og gagnrýna skoðanir feminista eins og allra annarra og það hef ég sannarlega gert sjálf. Feministar hafa þó að sjálfsögðu fullt leyfi til að hafa skoðanir sem mér þykja asnalegar og ég sé ekki að mér eða nokkrum öðrum sem ekki tilheyrir hreyfingunni, komi það nokkuð við hvernig þetta fólk kýs að vinna eða hafi rétt til að segja því hverju það ætti að berjast fyrir. Það er dæmigert fyrir passíva nöldurseggi að reyna stöðugt að segja öðrum fyrir verkum en leggja ekkert á vogarskálarnar sjálfir. Þið fávitar sem leyfið ykkur að úthúða feministum fyrir að berjast gegn klámi og kynbundnum launamun í stað þess að berjast fyrir t.d. mannréttindum kvenna í Afríku (það má sjá hundruð slíkra athugasemda t.d. á vefbók Sóleyjar Tómasdóttur og Katrínar Önnu Guðmundsdóttur); drullið ykkur sjálf til Afríku og gerið eitthvað í málinu ef þið hafið svona miklar áhyggjur af ástandinu þar.

Bleikt og blátt á fæðingardeildum; mér finnst spurningin áhugaverð en sé ekki ástæðu til að sóa tíma þingsins í umræður af þessu tagi. Ég efast reyndar um að litir ungbarnaklæða skipti miklu máli. Í fyrsta lagi vegna þess að langflestir sem hafa áhrif á mótun barna í frumbernsku vita hvors kyns barnið er og hegða sér eftir þeirri vitneskju, óháð því hvernig barnið er klætt. Í öðru lagi þá voru börn af báðum kynjum klædd í hvítt á fæðingardeildum áður fyrr og ég get nú ekki séð að kynjaímyndir hafi verið neitt veikari fyrir vikið.

Óheft flæði útlendinga inn í landið skapar fleiri vandamál en það leysir. Það er einfaldlega staðreynd að Pólverjar hafa vanist öðru viðhorfi til ölvunaraksturs en við. Það er staðreynd að hugmyndir strangtrúaðra araba um heiður ættarinnar stangast á við okkar hugmyndir um mannréttindi. Það er staðreynd þeir sem hafa búið við langvarandi fátækt og kúgun skilgreina ofbeldi og jafnvel aðra glæpi á annan hátt en við. Við getum farið þrjár leiðir:

  1. Sett okkur stefnu um það hvernig við ætlum að taka á móti fólki með ólíkan menningarbakgrunn, hvernig við ætlum að kynna því skyldur þess og réttindi, hvaða viðhorfum við ætlum að sýna skilning og umburðarlyndi og hverskonar hegðun verður ekki liðin á Íslandi.
  2. Reynt að hindra komu útlendinga til landsins og/eða hrekja þá héðan með því að sýna þeim skítaframkomu.
  3. Afneitað vandanum og beðið eftir því að ástandið lagist af sjálfu sér.

Góðar stundir.

——————————-

Á þeim tíma sem þessi pistill var skrifaður gerði ég mér enga grein fyrir því hversu illa Íslendingar komu fram við flóttamenn. Í dag er ég á því að það sé ekki hægt að bregðast við mannréttindabrotum nema með óheftu flæði fólks á milli landa.

Deildu færslunni

Share to Facebook

One thought on “Pólitíkin rak upp bofs

  1. ———————————

    Sennilega fyrstu vef-andmælin við bleiktogblátt-málinu sem eru ekki glórulaus.

    Og 20 bloggsentrimetrar af skynsamlegri nýbúastefnu.

    Gott dagsverk myndi ég segja.

    Posted by: Varríus | 6.12.2007 | 17:40:51

    — — —

    Leið A er farin hér í Noregi eftir að Norðmenn höfðu áttað sig á því að annað virkaði ekki. Ég er mjög hrifinn af þeirri leið. Skyldunám fyrir innflytjendur er eina leiðin.

    Posted by: Þorkell | 8.12.2007 | 12:48:57

    — — —

    Ah já fargi fasismi, þú heillar en. Spurning samt hvað áttu við með því að maður meigi ekki nefna aferíku til samanburðar án þess að kaupa flugmiða og „gera eithvað“ í málinu, er það komið svo í svo grunnan farveg að það eru enginn vandamál nema þau sem maður getur leist sjálfur ? Já það er rétt að „helvítis“ útlendingarnir ættu að íslenskast eins og menn, er það of stór beyðni að ættlast til þess að maður geti pantað sér mat eða borgað í bónus án þess að tala eithvað hroggna mál ? Ef ég er spurður þá seigi ég já ég elska fasisma og nýfrjálshigju því hún drullu virkar, en ég hef ekki magan í að framfylgja þeim reglum sem eru nauðsinlegar til að „redda málonum“ því mæli ég með annars ágætri lausn sem er miklu verri fyrir alla íslendinga og það er að legja þetta land á hilluna landamæri eru fjári gamalt hugtak og tungumálið er ekki svo sérstakt að ekki sé hægt að bjarga sér á annari tungu. ég vill gera það sem fyrverandi hæst virtur landbúnaðar ráðherra vildi gera það að flitja inn nó af útlenskum mjólkur kúm og legja af hugmyndir um hin íslenska stofn. er ég „AND-nasisti“ eða var kanski ekki eðlilegt að flitja inn útlendinga til að sinna eftirspurn á atvinnumarkaði? „vandamálið“ verður sem sé ekki bara leist með einum af þessum þremur valmöguleikum held ég. þetta er í raun eitt fyrst vandamál íslands eftir að það varð ríkt svona fyrir utan eimd margra einstæðar mæðra og blindni sjórnvalda en hver er ég að gagrína ekki geri ég neit í málonum.

    Posted by: Dreingurinn | 10.12.2007 | 11:11:57

Lokað er á athugasemdir.