Með fullri virðingu fyrir píkunni

cunt-1

Það sem ég skil ekki í málflutningi klámandstæðinga er að hlutgervingar- og fórnarlamsumræðan skuli:
a) bara snúast um konur en ekki karla
b) snúast um allar konur í þessum bransa, líka þær sem hafa lýst því yfir að þær hafi valið sér þennan starfsvettvang og óskað þess að vera látnar í friði
c) einkennast af þessum undarlega frasa „að selja líkama sinn“.

Ég hef ekki víðtæka þekkingu á klámi. Hef bara ekki nægan áhuga á þessari hallærislegu listgrein til að nenna að kynna mér hana að ráði. Það litla sem ég hef séð er afskaplega ótrúverðugt, en þó ekkert ótrúverðugra en rómantískar gamanmyndir eru almennt. Það klám sem ég hef séð dregur upp ósannfærandi og fremur ógeðfellda mynd af bæði körlum og konum sem óseðjandi kynlífsmaskínum sem hafa hvorki andlegar né líkamlegar hömlur. Ekki get ég séð að konur séu þar meiri leikföng eða þolendur en karlarnir. Ég sé heldur ekki að staðalmyndir séu þar meira áberandi en í tískubransanum eða Hollywoodmyndum. Silikongellan og gaurinn með millifótaljósastaur eru kannski algengustu typurnar en einnig er til feitabolluklám, ellismellaklám og myndir sem sýna konur í háum leðurstígvélum rassskella fullorðna karlmenn. Óskaplega hlýtur þessháttar klám að ýta undir hugmyndina um konur sem óvirk leikföng.

Ég efast ekki um að ýmisskonar misbeiting á sér stað í tengslum við klámiðnaðinn og ÞAÐ er vandamál sem þarf að uppræta. Allt almennilegt fólk getur verið sammála um að barnaþrælkun skuli uppræta. Fáir munu hinsvegar álíta að rétta leiðin til þess sé sú að banna kaup og sölu á gólfmottum. Klám- og kynlífsgeirinn er ekki smábissniss örfárra skúrka heldur umfangsmikill iðnaður sem þúsundir kvenna og karla (þeir eru reyndar í minnihluta) hafa lifibrauð sitt af. Sumir fara út í þennan iðnað vegna sárrar neyðar. Rétt eins og menn hafa unnið í kolanámum og við önnur hættuleg störf af því að ekkert skárra var í boði. Aðrir fara út í þetta af frjálsum vilja. Rétt eins og sumir velja sér ógeðsleg störf á borð við ristilskurðlækningar.

Ég skil ekki hvernig nokkur maður getur fengið sig til að vinna við að lóga kettlingum en það er staðreynd að sumir gera það án þess að nokkur nauðung komi til. Ég skil heldur ekki að nokkur skuli vilja hafa atvinnu af því að láta sódómast á sér fyrir framan myndavél en minn smekkur gerir þetta fólk hvorki að fórnarlömbum né skúrkum. Ég skil hinsvegar fólk sem er tilbúið til að vinna störf sem þykja ekki fín, fremur en að lifa við örbirgð.

Klámleikarar og vændiskonur selja ekki líkama sinn fremur en annað fólk. Það hefur líkamann ennþá, og gerir það sem því þóknast með honum eftir að myndatöku, strippsjóvi eða hópreið lýkur. Þetta fólk selur þjónustu sína, rétt eins og vegavinnumaðurinn, bankastjórinn og sviðsleikarinn. Sumir gera það vegna nánast meðfæddrar samfélagsstöðu, rétt eins og íslenska fiskverkakonan fyrir 30 árum, aðrir velja það. Sumir eru ekkert annað en þrælar aðrir hátekjufólk sem er fullkomlega sátt við stöðu sína.

Þrælahald á auðvitað aldrei að viðgangast en við upprætum það ekki með því að lýsa vanþóknun á tilteknum iðnaði. Ef flokkssystkini mín í VG eru í einlægni að hugsa um þrælahald, þá ættu þau að beina sínum uppsnúnu nefum að því þrælahaldi sem viðgengst daglega á Íslandi. Vinstri menn hafa mótmælt augljósum lögbrotum gegn erlendum verkamönnum en sjaldan af sömu geðshræringu og þeir mótmæla sýningum á brókarlausu kvenfólki. Þeir hafa þanið sig yfir meðferðinni á fátækum gamalmennum en aum reynist eftirfylgnin við þann lúðrablástur. Ef frjálslyndum vinstri mönnum á Íslandi væri í alvörunni umhugað um mannlega reisn, myndu þeir frekar skoða rannsóknir á því hvernig það fer með sjálfsvirðingu fólks að vinna fyrir launum sem ekki er hægt að framfleyta sér af, í samfélagi sem álítur virðulegra að fela fátækt sína með endalausum lántökum en að ganga í gömlum fötum og taka strætó í vinnuna. Það er frekar dapurlegt til þess að hugsa að fólk sem þykist vera umhugað um réttinn til sjálfsvirðingar skuli vera svo grunnhyggið að halda að sjálfsvirðing kvenna sé fyrst og fremst geymd í píkunni.

Og talandi um þræla …

… hér býr fjölmenn stétt þræla. Fjölmenn stétt fólks sem er fætt og uppalið til ævilangrar þrælkunar. Fáeinir hafa að vísu leiðst út í búskap á fullorðinsárum en langflestir bændur hafa aldrei átt neina valkosti.

Þetta fólk er í raun öreigar, því þótt það sé skráð fyrir eignum, eru það iðulega eignir sem engin leið er að losna við fyrir sannvirði. Sumarfrí er ekki inni í myndinni, ekki helgarfrí heldur. Þar sem þetta vesalings fólk er að nafninu til eigin herrar, kemur ekkert í veg fyrir að það vaki sólarhringum saman yfir sauðburði eða sé ósofið á vinnuvélum til að ná inn heyjum. Margir hafa enga menntun, eiga enga varasjóði og hafa enga þá reynslu sem gerir þeim auðvelt að koma sér burt úr eymdinni hjálparlaust.

Engin samtök styðja fátæka bændur sem vilja leggja niður búskap eða veita þeim áfallahjálp og ekki man ég til þess að hafa heyrt neinar tillögur um að reynt verði að ná til þeirra til að hjálpa þeim að brjótast úr úr þessari skaðlegu og sjálfsniðurlægjandi starfsgrein. En ef fréttist að ómenntaður útlendingur fái greitt fyrir að fara úr brókinni á sviði, þá stendur ekki á bjargvættunum.

Hneykslunin yfir klám- og kynlífsiðnaðinum snýst ekki um mannréttindi, kvenréttindi eða virðingu fyrir mannssálinni. Úlfaþyturinn stafar fyrst og fremst af lítilmótlegri hneigð mannsins til að telja sína eigin kynlifshegðun þá einu eðlilegu, siðlegu og réttu.

Deildu færslunni

Share to Facebook

One thought on “Með fullri virðingu fyrir píkunni

  1. —————————————————-

    Þetta sem þú ert að skrifa um íslenska bændur átti hugsanlega við fyrir 5 -10 árum. En ekki lengur.

    Posted by: Harpa | 18.02.2007 | 2:07:52

    —————————————————-

    það fer reyndar svolítið eftir því hvaða bændur.

    Posted by: hildigunnur | 18.02.2007 | 2:13:00

    —————————————————-

    Væri ekki réttara að byrja á því að banna innflutning á vörum sem framleiddar eru af þrælum stórfyrirtækja? Það væri í það minnsta hægt að gera kröfu til þess að slíkar vörur væru merktar með viðvörun, eins og tópaksvörur nú til dags! Annars er ég sammála klámpistlinum þínum.

    Posted by: Þorkell | 20.02.2007 | 5:15:30

    —————————————————-

    Tóbaksvörur átti þetta nú reyndar að vera 🙂

    Posted by: Þorkell | 20.02.2007 | 6:24:15

    —————————————————-

    Mér a.m.k. þætti vel við hæfi að taka upp alþjóðlegan gæðastimpil sem nær yfir aðbúnað að starfsfólki svo maður viti þá allavega af því þegar maður styður barnaþrælkun og aðra ánauð.

    Það er óttaleg hræsni af þjóð sem flytur inn þrælaframleiðslu í stórum stíl og býður eldri hjónum upp á það að vera vistuð á sitthvoru hjúkrunarheimilinu, skuli æpa „niðurlæging og kúgun“ í hvert sinn sem fréttist af brókarlausum útlendingum sem hafa vit á því að taka almennilega greiðslu fyrir að flíka klofinu á sér á sviði. Það ku víst bera vott um ögn meiri sjálfsvirðingu að skiptast á líkamsvessum við ókunnuga ef fórnarlambið (konan að sjálfsögðu því konur sem ríða eru alltaf fórnarlömb) er Íslendingur og greiðslan í fljótandi formi.

    Posted by: Eva | 20.02.2007 | 7:13:07

    __________________________________________________________________
    Tjásur:

    Ég er eins mikið á móti þessari ráðstefnu eins og Ku Klux Klan ætlaði að halda ráðstefnu hér á landi. Spurningin er hvað getur maður gert ? Mér finnst þessi umræða vera einhvers konar siðferðisleg sjálfsfróun þegar ekkert er lagt til varðandi lausnir.Á að banna þessa ráðstefnu fyrirfram án þess að meint brot gegn hegningarlaga ákvæðum eru sannreynd ? Á að banna þessa ráðstefnu en láta sem resin af klámbylgjunni sé ekki til. Vill fólk fara út í víðtæka ritskoðun á öllu fjölmiðlaefni til að einhver meti með huglægum hætti hvað teljist klám og banni það. Gerir fólk sér einhverja grein fyrir hvað það mundi þýða í praktískum atriðum ? Viljum við virkilega búa í slíku þjóðfélagi ef sú væri raunin ?

    Posted by: GVV | 17.02.2007 | 15:06:03

    ——————————————————–

    Þú ert svo mikill snillingur. Farðu nú að fá borgað fyrir að skrifa kona!!

    Posted by: lindablinda | 17.02.2007 | 15:25:36

    ——————————————————–

    Voðalega er ég alltaf feginn þegar sé uppgötva konur sem eru með jarðtengingu í þessum „andfemínísku“ málum. Ef ég les of mikið af femínistabloggi þá langar mig ekki að eiga nein samskipti við konur í einhvern tíma á eftir. Ég er skyndilega orðinn óhreinn, illa lyktandi og feitur auk þess sem helsta markmið mitt í lífinu á að vera að niðurlægja konur og minnimáttar ásamt því að snúa kettlinga úr hálsliðnum mér til afþreyingar. Og þó svo mér takist að hrista þetta af mér þá get ég engu að síður látið mér líða illa yfir því að forfeður mínir 5000 ár aftur í tímann hafi verið svona. Þetta er náttúrulega bilun. Og hún er fyrst og fremst hjá konum sem hugsa svona um karlmenn.

    Posted by: Hugz | 18.02.2007 | 23:55:38

    ——————————————————–

    Líkami okkar er víst „heilagt hof“, sem við sjálf löbbum um í á grútskítugum og illa lyktandi skónum, söfnum óhreinindum og fitu í hvert horn, en nei þegar einhver annar vill „saurga hofið“, þá er fjandinn laus.
    Annars er inntak ofsamálflutnings öfgafemínista (újé) þannig í meginatriðum að klám hafi verið fundið upp af stórum ljótum illa lyktandi körlum sem kúga grey konurnar, ALLAR. Þannig að hugtök eins og klámdrottningar eru eflaust ekki til í ofurbleikum femínistahausum.

    Posted by: Gillimann | 19.02.2007 | 15:13:01

    ——————————————————–

    Rosalega góður pistill – fangar akkúrat það sem ég hef verið að hugsa. Megi sem flestir lesa hann.

    Posted by: Ásdís Anna | 21.02.2007 | 18:46:37

    ——————————————————–

    Ég sé að þú hefur skrifað á sömu nótum um klámið og ég á Múrnum, en þú varst reyndar fyrri til.

    Posted by: Rafaugað | 22.02.2007 | 9:46:38

    ——————————————————–

    Ég er svo aldeilis. Frábær pistill.

    Posted by: Kjartan Hallur | 23.02.2007 | 0:50:29

Lokað er á athugasemdir.