Ný viðskiptahugmynd

Í dag kom ungur maður inn í búð til mín, 10 eða 12 ára kotroskinn og keikur. Hann stakk að mér viðskiptahugmynd sem ekki hefur brugðið fyrir í mínum villtustu fantasíum.

-Þessi búð þyrfti að vera stærri, sagði aðdándinn ungi og ég samsinnti því og sagði honum að það kæmi vel til greina að færa út kvíarnar í fyllingu tímans ef ég fyndi hentugt húsnæði.
-Þetta sagðirðu nú líka þegar við komum að kaupa jólagjafir, svaraði hann einbeittur og horfði beint í augun á mér. Mér leið eins og væru fjögur ár síðan hann kom hingað með mömmu sinni upp úr miðjum desember og að ég hefði verið staðin að því að svíkja kosningaloforð. Ég tautaði eitthvað um að það tæki tíma að safna peningum og finna rétt húsnæði, mér til afsökunar en fékk þá viðskiptahugmynd aldarinnar á silfurfati.
-Ég veit sko nefnilega um hús sem þú getur fengið, sagði hann íbygginn.
-Nú, er það hér í nágrenninu? spurði ég.
-Það er svolítið langt frá. Veistu hvar IKEA var áður?
Jújú, ég vissi það svosem.
-Það hús er sko laust. Þú getur áreiðanlega fengið það, sagði minn með sannfæringu.

Og nú er ég auðvitað á fullu að skipuleggja. Ég hugsa að ég setji reykelsin í sófadeildina og alla 60 stokkana af tarotspilum í svefnherbergisálmuna. Krákuvængirnir geta bara verið í Boltalandi. Ég á hvort sem er ekki nema tvo. Ég fæ allavega nóg pláss til að bæta við smá fatnaði og bókum. Staðsetningin er líka brilliant. Ég meina, sjáiði ekki fyrir ykkur föstudagsinnkaupin. Rúmfatalagerinn; tvö viskustykki og fimm herðatré, Bónus; helgarsteik, Cheerios, appelsínusafi og fleira, Ríkið, ein kippa af bjór og ein hvítvínsflaska, Nornabúðin; ein girndarrún, nokkrir stokkar af spáspilum, barnakrem, einn pakki af brenninetlu, slatti af rjúpnalöppum, tvær skuldafælur og eitt hreindýrshorn … Allt það nauðsynlegasta á einum stað.

 

Best er að deila með því að afrita slóðina

One thought on “Ný viðskiptahugmynd

  1. ————————————————

    Stórhuga þessi drengur!

    Posted by: Gillimann | 13.02.2007 | 0:42:21

    ————————————————

    Snillingur þessi drengur 😀

    Posted by: Harpa | 13.02.2007 | 2:22:11

    ————————————————

    þetta er gráupplagt:D

    Posted by: baun | 13.02.2007 | 8:31:42

    ————————————————

    Eru ekki einhverjir afgangs regnskógar sem má höggva í skreytingar?

    Posted by: Anonymous | 13.02.2007 | 8:43:15

    ————————————————

    Hugsa stórt. Aldrei að vita hvað gerist.

    Posted by: lindablinda | 13.02.2007 | 10:13:31

    ————————————————

    Þú ættir að ráða hann í vinnu … um leið og hann hefur aldur til.

    Posted by: Miss G | 13.02.2007 | 10:49:57

Lokað er á athugasemdir.