Trukkur

Mig svimar af offylli. Það er nú aldeilis gott á mig.

Við Miriam erum báðar grasekkjur en héldum upp á konudaginn með morgunverði á Gráa kettinum. Ég át HEILAN trukk. Ég meina upp til agna. Þetta er náttúrulega rugl. Ætti ekki að vera hægt. Nú þarf ég heldur ekki að borða aftur fyrr en um páska. Mér leið undursamlega í svona 40 mínútur á eftir en nú er ég á niðurtúr.

Ég er svo heppin að hafa óvenju sterkan maga. Mér hefur ekki orðið illt af ofáti síðan ég var átta ára og finnst með ólíkindum að nokkur geti lagt á sig að borða sér til magapínu en það kemur fyrir, kannski tvisvar á ári að ég fæ sykurskjálfta. Ég hef ekki látið neinn hvítan sykur ofan í mig í morgun og ég skelf ekki en ég er döpur án nokkurrar ástæðu og svo syfjuð að ég þori ekki að setjast undir stýri. Varla hafa kartöflurnar farið svona með mig svo þetta hlýtur að vera beikonsjokk.

Miriam finnst íslenski veturinn æðislegur. Mig langar til græna Englands þar sem páskaliljur vaxa villtar í febrúar.

 

Best er að deila með því að afrita slóðina

One thought on “Trukkur

  1. ——————————————-

    Obbobobbobb…engan hvítan sykur, djös kjaftæði. Ég fékk mér auðvitað sýróp með pönnukökunum. Samt get ég ekki skrifað þessa þreytu á sykurinn því á venjulegum degi get ég alveg gúllað í mig hálfu kílói af súkkulaði án þess að finna fyrir því. Þetta er beikonið. Eða bara magnið.

    Posted by: Eva | 24.02.2008 | 13:01:13

    —   —   —

    Mér finnst íslenskir vetrar ógeðslegir.
    Hér voru komin blóm í lok janúars og nú er allt stútfullt af blómum og laukum. Finnst samt of kalt fyrir minn smekk. Langar til Afríku.
    Þambaðu 2 glös af vatni.

    Posted by: Hulla | 24.02.2008 | 16:58:45

    —   —   —

    mmm, trukkur 😀

    Ég var einu sinni með svona maga sem ekkert beit á. Nú er ég hætt að þola að borða mikið rautt kjöt. Sorglegt.

    Posted by: hildigunnur | 24.02.2008 | 23:04:23

    —   —   —

    Íslenskur vetur er barasta fínn, amk á svona dögum þar sem frostið bítur af manni fingurnar en maður dásamar útsýnið og vetrarsólina.
    Suður-enskt sumar langar mig hinsvegar í aftur.

    Posted by: Gillimann | 26.02.2008 | 1:24:31

Lokað er á athugasemdir.