Bara þó nokkuð gott

Ég held að ég sé búin að finna uppskriftina að vel heppnuðu djammi. Hún hljóðar svo:

Undirbúningur: Brauðsneið með hnetusmjöri, létt andlitsförðun.
Klæðnaður: Það sem hendi er næst (reyndar eftir að maður hefur komið því í verk að setja svitastokkinn æfingagalla í þvottakörfuna, það eru takmörk fyrir því hversu kærulaus maður getur verið um útganginn á sér) og skór sem hægt er að ganga á án þess að eiga á hættu að hálsbrjóta sig.
Félagsskapur: 1 skemmtileg kona og hugsanlega 1 stimamjúkur barþjónn. Aðrir karlmenn skulu hundsaðir, einkum og sér í lagi ef þeir eru drukknir, illa lyktandi og vilja sitja sem þéttast upp við mann og fræða mann um enska knattspyrnu.
Veitingar:1 léttvínsglas, 1 dísætur kokteill, 2 konfektmolar.
Staður: Reyklaus.
Tími: 21:30-00:05
Heimferðarmáti: 90 sekúndna ganga.

Það var milljón gaman og ef ég finn færri en 5 innsláttarvillur í þessari færslu í fyrramálið, þá er það til marks um að ég sé hæfilega full líka.

Er farin í rúmið. Líður svo vel að ég nenni ekki einu sinni að jesússa mig.

 

Best er að deila með því að afrita slóðina

One thought on “Bara þó nokkuð gott

  1. ——————————–

    stimamjúkir barþjónar eru gersemi, fullir menn blaðrandi um enska knattspyrnu eru mengun.

    en það var stuð í stólaleiknum og mér fannst sætu konurnar í glugganum beint á móti okkur bæði fagrar og geðþekkar:)

    Posted by: baun | 16.06.2007 | 1:21:46

Lokað er á athugasemdir.