tja

-Það gengur fjöllunum hærra að þið Bruggarinn séuð nánast orðin par, sagði Spengilfríður þegar ég mætti í vinnuna í kvöld.
-Já, ég hef heyrt það líka en það reyndist bara hin mesta lygi, svaraði ég.
-Mér finnst að þið ættuð að gera alvöru úr því, það er kominn tími á að eitthvað gerist í ástamálum á þessum vinnustað, sagði hún.

Nejjj veistu Spengilfríður, ég held að það sé nú ekki raunhæft að við verðum nokkurntíma par. Hins vegar má vel vera að ég geri einhverntíma tilraun til að fífla Bruggarann, þrátt fyrir aldursmuninn. Ekki þó fyrr en hann er búinn að afgreiða Pólínu. Ég hef það fyrir reglu að eiga aldrei skyndikynni nema einhver vinkvenna minna sé búin að prufukeyra viðfangið.

Best er að deila með því að afrita slóðina