Þú ferð í salinn

-Þú verður í salnum í kvöld, sagði Bruggarinn og staðhæfði að hann hefði fengið Egyptann til að taka uppvaskið.
-Ég trúi því ekki að þú ætlir í alvöru að setja mig í þetta helvítis …(ég ætlaði að segja alkóhólistadjobb en áttaði mig nógu snemma. Strákgreyið er sennilega bullandi alki eins og allir þjónar og engin ástæða til að særa hann með því, ég leitaði í huganum en fann ekkert skárra orð en …)… negrajobb (og það var auðvitað hálfhallærislegt þar sem ég er nú þegar í negrajobbi sem af einhverjum dularfullum ástæðum þykir ennþá hallærislegra en að þjóna.

Hann varð líka á svipinn eins og ég hefði sagt eitthvað beinlínis móðgandi.)
-Negrajobb! Heyrðu góða mín ÞÚ ert í uppvaskinu.
-Já, mér finnst það skárra en að þjóna en ég get auðvitað alveg gert það, verð þá bara að skjótast heim og mála mig, ekki viltu fá mig svona útlítandi inn í sal.
-Ég hlýt að hafa verið virkilega svekkt á svipinn því hann brast í hlátur.
-Ég er bara að stríða þér, þú þarft ekkert að fara í salinn, sagði hann en ég er næstum viss um að honum finnst ég stórfurðuleg að vilja frekar vera í eldhúsinu.

Best er að deila með því að afrita slóðina