Bösl í hösli

Þegar letin kemst á það stig að maður nennir ekki einusinni að fróa sér er orðið tímabært að gera eitthvað í málinu. Ég fór inn á einkamal.is og auglýsti eftir skuldbindingarlausum skyndikynnum. Viðbrögðin urðu mun betri en þegar ég auglýsti eftir nothæfum eiginmanni. Að vísu nokkuð margir giftir og graðir en líka nokkrir í svipaðri aðstöðu og ég sjálf. Ég tók fram að ég gerði skýlausa kröfu um að viðfang væntanlegra skyndikynna væri áhorfanlegt og ekki meira að umfangi en svo að ég næði utan um það.

Eftir hálftíma var ég búin að mæla mér mót við mann sem virtist þokkalega viðræðuhæfur. Hann var kominn á Svarta Kaffið á Laugaveginum á undan mér. Kannski ekki alveg Johnny Depp en verulega langt frá því að vera ljótur. Með þetta líka fallega bros og aðeins 15 mínútna spjall sannfærði mig um að hann væri bæði klár og skemmtilegur. Við ákváðum að rölta Laugaveginn í góða veðrinu og þaðan upp Hverfisgötuna.

Á Hverfisgötunni dró hann mig inn í bakgarð og þegar hann greip þéttingsfast utan um mig og þrýsti mér að karlmannlegu brjósti sínu, leið mér eins og flóuð hormónamjólk væri að freyða upp í hausinn á mér. Froðan hjaðnaði þó snarlega þegar mannhelvítið rak tunguna ofan í vélindað á mér í stað þess að kyssa mig. Mér svelgdist á, ég kúgaðist og táraðist en hann tók því sem merki um að mér þætti þessi taktík algjört æði. Hann hélt því áfram og gerði heiðarlega tilraun til að sleikja æluna upp úr innyflum mínum. Má með sanni segja að engum manni hafi auðnast að komast jafn nálægt því að snerta hjarta mitt með tungulipurð sinni.

Þegar mér tókst loks að slíta mig lausa, bar ég því við að ég hefði alls ekki ætlað að láta til skarar skríða á fyrsta deiti og börnin væntu mín heim eftir smástund. Sjálfsagt hefði ég þurft að sinna sálgæslu fram á nótt ef ég hefði sagt honum satt.

Ég bauð góða nótt, fór aftur inn á Svarta Kaffi og dró upp varasímanúmerið. 20 mínútum síðar birtist hann í dyrunum og ég hugsaði; Guð er til -og ástin.

Hann var meira en sætur. Hann var fallegri en Elijah Wood, sakleysið uppmálað, svart hár, blá augu og varla deginum eldri en 25 ára. Ég kann engar pikkupp lí­nur svo ég spurði hann hvort hann hefði hitt fleiri konur í gegnum einkamál.

-Nei, é vassko í­ sambandi sko og so langaði mér gegt a tékkássu en emmar sé giftur þá sé maður giftur o þá vill ékkett vera að bjóða freistingunum heim so konan verði ekki vitlaus, so é gerrekket íðí. So var dömpað mér í­ sumar o þá sko gerði ég nikk addna en þa var ekket mikið kvenfólk sem svaraði o so bra svaraðir þú.

Ég horfði á hann dálitla stund. Sætur eða ofsasætur, það eru samt takmörk fyrir öllu. Ég bara GET EKKI átt kynferðislegt samneyti við lífveru sem segir „ef maður sé giftur“ og „það var dömpað mér“.

Ég þakkaði fyrir spjallið, óskaði honum velfarnaðar og fór heim að sofa, án þess að leiðrétta svo mikið sem eina málvillu. Sumt er einfaldlega utan míns áhrifasviðs.

Mér leiðist ennþá.

Best er að deila með því að afrita slóðina