Hvað er að ske?

Sögnin að ske er dönsk að uppruna en hefur fest rætur í íslensku málfari. Þessi sögn á sama rétt á sér og önnur tökuorð en mér finnst slæmt hve oft hún er notuð í annarri merkingu en íslenska sögnin að gerast.

Hvað er um að ske er að mínu viti röng málnotkun vegna þess að sögnin að ske, merkir alls ekki það sama og sögnin að vera. Einhverju sinni spurði ég hóp unglinga í 9. bekk hvort væri hægt að nota annað orðalag en hvað er um að ske? Einn úr hópnum taldi heppilegra að segja hvað er í gangi? Ég er því sammála að það er skárra, en fallegra finnst mér að segja:  Hvað er að ske? Hvað er að gerast? Hvað er um að vera? 

Annars er engu líkara en að merking sagnarinnar að gerast sé óljós í hugum sumra Íslendinga. Eitt sinn fól ég fyrrnefndum bekk að leiðrétta setninguna hvað skeði fyrir Helgu? Ég hafði heyrt marga úr hópnum nota sögnina á þennan hátt en hélt að það væri merki um tískusveiflu í málfari eða kannski kæruleysi. Það runnu þó á mig tvær grímur þegar ég sá að meirihluti barnanna var sammála um að rétt útgáfa af þessari setningu hlyti að vera hvað gerðist fyrir Helgu?

Leiðréttum þessi ósköp hjá börnum og unglingum. Kennum þeim að nota sögnina að gerast á réttan hátt. Hvetjum þau til að segja hvað kom fyrir Helgu? eða bara hvað gerðist?

Bösl í hösli

Þegar letin kemst á það stig að maður nennir ekki einusinni að fróa sér er orðið tímabært að gera eitthvað í málinu. Ég fór inn á einkamal.is og auglýsti eftir skuldbindingarlausum skyndikynnum. Viðbrögðin urðu mun betri en þegar ég auglýsti eftir nothæfum eiginmanni. Að vísu nokkuð margir giftir og graðir en líka nokkrir í svipaðri aðstöðu og ég sjálf. Ég tók fram að ég gerði skýlausa kröfu um að viðfang væntanlegra skyndikynna væri áhorfanlegt og ekki meira að umfangi en svo að ég næði utan um það. Halda áfram að lesa

Vælið í forræðislausum feðrum

bidÓttalega leiðist mér vælið í forræðislausum feðrum sem halda því fram að mömmurnar banni þeim að umgangast börnin sín. Mér finnst sjálfsagt að vekja athygli á vanda þeirra feðra sem eru raunverulega hindraðir í því að vera með börnum sínum en á köflum minnir málflutningur forræðislausra feðra á baráttuaðferðir feminista.  Halda áfram að lesa

Þessvegna ræða trúlausir þetta samt

Þessi færsla er hluti af pistlaröð

Í fyrri pistum hef ég rætt helstu ástæðurnar fyrir því hversvegna samræður trúaðra og trúlausra ganga svo illa.  Það er útilokað að við verðum nokkurntíma sammála svo hversvegna halda trúleysingjar uppi umræðu um trúmál? Ég lýk þessari röð á tilraun til að svara þeirri spurningu.

Halda áfram að lesa