Sjúkt og rangt

Ligg í djöfullegri hálsbólgu, sjálfsvorkunn, veikindakvíða, blankheitakvíða og öðrum aumingjaskap. Sé ekki vott af þessu guðlega réttlæti hennar Spúnkhildar í því að ég veikist. Ég hef alltaf verið góð stelpa og á ekki skilið að veikjast. Þetta er sjúkt og rangt. Halda áfram að lesa

Ýkt sódó

Sáum Vodkakúrinn í gærkvöldi, bara býsna (af hverju er ý í býsn -er það komið úr fornnorrænu „búsnian“? Verð að líta í Orðsifjabókina; gaman. Halda áfram að lesa