Áskorun til stjórnar FME

Samkvæmt þessari frétt hefur Ástráður Haraldsson átt í deilum við skilanefnd Glitnis um hundruða milljóna viðskipti vegna framvirkra samninga með skuldabréf Kaupþings. Það gerir Ástráð augljóslega óhæfan til að skrifa álitsgerðir fyrir Fjármálaeftirlitið. Því ætti stjórn FME að henda í snarhasti skýrslunni sem Ástráður skrifaði um forstjóra FME. Halda áfram að lesa

Alþingi, Ástráður og valdahrokinn

Í hádegisfréttum útvarps í dag sagði Ástráður Haraldsson að það væri eðlilegt að hann tæki aftur sæti í Landskjörstjórn, af því að hann nyti trausts Alþingis.  Hann minntist ekki á að þetta sama Alþingi nýtur trausts um tíu prósenta þjóðarinnar, og því er traustsyfirlýsing þess engin yfirlýsing um traust þeirra sem þurfa að treysta honum, almennings í landinu.  Auk þess er það skrípaleikur að segja af sér embætti og setjast í það aftur mánuði síðar. Halda áfram að lesa

Alþingi sýnir f-merkið

Fyrir fáum vikum sagði Landskjörstjórn af sér, þar með talinn formaður hennar, Ástráður Haraldsson, af því að kosningin til Stjórnlagaþings var úrskurðuð ógild fyrir handvömm kjörstjórnarinnar.  Það er hægt að hafa ólíkar skoðanir á úrskurðinum, en það tíðkast í þeim löndum sem við viljum helst bera okkur saman við að segja af sér embætti ef maður nýtur ekki trausts þeirra sem yfir mann eru settir.  Fyrir því er góð ástæða, jafnvel þótt maður sé ósammála þeim sem ræður för, og það er sérlega mikilvægt að kjörstjórn njóti óskoraðs trausts. Halda áfram að lesa