Álfatrúartrú Íslendinga

Því er stundum haldið fram að Íslendingar trúi á álfa og huldufólk.  Um þetta má deila, en fæstir vita þó uppruna þessarar trúar á álfatrú landsmanna.  Lausleg athugun leiðir eftirfarandi í ljós (í samræmi við þær hefðir sem virðast gilda í umræðum um þessi mál og skyld verður hér vandlega forðast að geta heimilda eða áreiðanlegra gagna): Halda áfram að lesa →

Stjórnlagaráð, kynjakvótar og jafnt vægi atkvæða

Eins og sjá má í Áfangaskjali stjórnlagaráðs er lagt til að setja megi „í lög ákvæði um lágmarkshlutfall karla og kvenna“ í kosningum til Alþingis.  Svo virðist sem flest stjórnlagaráðsfólk geri sér ekki grein fyrir að með þessu er brotið gegn þeirri grundvallarreglu sem flestir virðast vera sammála um í orði, nefnilega að öll atkvæði eigi að vega jafnt í kosningum til Alþingis. Halda áfram að lesa →

Einn maður eitt atkvæði — en sum atkvæði vega þyngra en önnur

Í þessari frétt segir meðal annars:  „Sú nefnd stjórnlagaráðs sem fjallar um kjördæmaskipan og þingkosningar leggur til talsverðar breytingar á fyrirkomulagi kosninga til Alþingis og vill að atkvæði kjósenda alls staðar á landinu vegi jafnt líkt og þjóðfundur lagði mikla áherslu á.“ Halda áfram að lesa →

Ranghugmyndir um háskólastarf og 2007

Nýlega kom fram þingsályktunartillaga „um sameiningu háskólastofnana og rekstur tveggja öflugra háskóla.“  Fyrir henni talaði Baldur Þórhallsson, varaþingmaður Samfylkingarinnar, og prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.  Þessi tillaga er ansi barnaleg og lýsir auk þess litlum skilningi á góðu háskólastarfi.  Í henni segir meðal annars (og maður spyr sig hvort enn sé árið 2007): „Þannig verði starfræktar tvær vísindastofnanir á landinu með nokkrar starfsstöðvar sem hafi getu til að vinna að rannsóknum og bjóða upp á háskólakennslu eins og best gerist í heiminum.“ Halda áfram að lesa →