Sex orða meme handa allskonar fólki

Meme-æðið greip mig. Dásamlegt ljóðform. Þótt það sé líklega ekki hugsað sem ljóðform. Húsmæður á heljarþröm náðu mér ekki niður af reiðinni sem hefur heltekið mig síðustu daga en það gerði meme. Örljóð um lífshlaup maura, það þarf í alvöru ekki meira en 6 orð. Sá sem telur sig þekkja yrkisefnið dregur slíkar ályktanir á eigin ábyrgð. Halda áfram að lesa →

Útlit er til alls fyrst

563274_10151309018827963_1807554242_nÁhrif Saving Iceland koma fram á undarlegasta hátt. Ég sé t.d. að Davíð Oddsson er búinn að taka upp hártískuna sem er ríkjandi hjá þeim virkustu. Eins og lopahönk hafi verið klesst á hausinn á honum. Mikið vildi ég að hann tileinkaði sér viðhorfin líka.

Sexhleypan

Í geðbólgu minni yfir skíthælshætti íslenskra stjórnvalda í málum flóttamanna, frestaði ég því að svara þessari áskorun. Ég veit reyndar ekki hvort er nein sérstök ástæða til að flækja hlutina svona mikið, þ.e. að nota 6 orð þegar 1 dugar, semsé sápuópera en mér er nú sjaldan orða vant svo ég hlýt að bregðast við. Halda áfram að lesa →

Örlagamaður

Örlagamaðurinn reyndist vera bróðir mannsins sem segir að ég sé með svarthol í sálinni.

Menn sem hafa sungið fyrir mig hafa tilhneigingu til að eiga bræður.