Einu sinni var ævintýramaður sem hafði yndi af því að þvælast um heiminn og kanna nýjar slóðir. Eitt árið dvaldi hann á eyðiey og þegar hann kom heim og sagði vinum sínum ferðasöguna, langaði fleiri að ferðast þangað. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir merki: kynþáttahyggja
Ólöglegir innflytjendur fá ekki krónu
Jón Magnússon fullyrðir að ólöglegir innflytjendur fái 215 þúsund krónur í dagpeninga á mánuði og Pressan lepur þessa speki upp án þess að sýna minnstu viðleitni til að fá þetta staðfest eða leita skýringa á því hversvegna ólöglegir innflytjendur fái hærri greiðslur en löglegir borgarar. Halda áfram að lesa
Klámsjúkir múslímar á mótorhjólum
Ofbeldi eykst og eykst og eykst. Sérstaklega kynferðisofbeldi. Menn greinir reyndar á um hvort það sé mótorhjólaklúbbum, klámvæðingunni eða muslimum að kenna en aukningin er staðreynd, heimur versnandi fer og æskunni hnignar. Halda áfram að lesa
Donald Pauly og asnaeyrun
Donald Pauly, rasista-vsealinegurinn sem hsiýr þessa vðiurstyggilegu netsíðu les blgogið mitt í gugnem þéðýingarvél. Enignögu í því synki að ergja hnan, sifkra ég þessa frælsu með bernglarði sfatsntniegu svo hann nyðeist til að lieta til anrsnas kynþáttahyggjuskítapkaks til að fá botn í taexntn. Halda áfram að lesa
Enn af klippingu borgarstjóra
Endur fyrir löngu lagði Hnakkus fram ágæt dæmi um birtingarmyndir kynþáttahyggju í daglegu lífi
Ég vil bæta aðeins við þessa ágætu upptalningu. Þú veist að þú ert rasisti: Halda áfram að lesa
Afsökunarbeiðni til Stefáns Snævarr
Íslendingar eru afskaplega þjóðernissinnaðir. Við erum stolt af okkar menningararfi og höfum, af landfræðilegum og menningarlegum ástæðum, líklega sterkari þjóðarvitund en margir aðrir hópar sem með misgóðum rökum skilgreina sig sem þjóð. Þjóðernishyggja á Íslandi er þó ekki hatursfull og fasísk eins og oft vill verða, hún er aðallega bara dálítið sveitaleg og í aðra röndina krúttleg. Halda áfram að lesa
Söguskýring rasistans
„Forn egyptaland var stofnað af ó-evrópskum hvítingjum og ringdi gullöld þeirra í margar aldir, allt á meðan þeir voru óblandaðir. Seinna á tímapunkti í sögu Egyptalands komust þeir í kynni við blökkumenn frá Núbíu. Þeir byrjuðu að taka þá inn sem vinnumenn og smátt og smátt byrjuðu þeir að blandast verkastéttinni. Síðan fór þessi blöndun ofar í efri stéttirnar. Stuttu seinna byrjaði veldi Egypta að hröklast niður gríðarlega og framfarir og viðhald á veldinu byrjaði að skreppa saman.“