-Löggan elti okkur. Hægði á bílnum þegar þeir nálguðust. Hringsólaði í kringum okkur. Tók smá rúnt en kom svo aftur, sami bíllinn. Rétt á eftir kom annar á móti honum, þeir stoppuðu, töluðu saman og einn benti í átt til okkar. Annar bíllinn stoppaði svo við hús vinar okkar eins og til að láta okkur vita að þeir vissu hvert við ætluðum.
Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir flokkinn: Sápuópera
Leysir þú reimarnar áður en þú ferð úr skónum? (FB leikur)
Ekki ef ég kemst auðveldlega úr þeim án þess. Og já svona þegar ég hugsa út í það þá geng ég reyndar oftast í skóm sem ég kemst úr án þess að leysa reimarnar. Og í þá líka.
Þetta hlýtur auðvitað að segja eitthvað um mann en hvað, því átta ég mig ekki á.
Þværð þú ónýtar nærbuxur áður en þú hendir þeim? (FB leikur)
Á listanum sem ég fékk var engin spurning nr 12 svo það hlýtur að merkja að ég megi ráða. Spurningin mín er þessi: Þværð þú ónýtar nærbuxur áður en þú hendir þeim?
Ég á semsagt, þótt það stríði gegn bæði skynsemi og umhverfissjónarmiðum, erfitt með að henda óhreinum nærbuxum. Ég þvæ þær fyrst, svo asnalegt sem það nú er.
Þótt ég setji myglaða ávexti og allskonar ógeð í ruslið, þá er ég haldin einhverjum undarlegum tepruskap gegn líkamlegu ógeði. Ég vef t.d. tíðabindi í pappír áður en ég hendi þeim, jafnvel þótt ég fari svo beint út með ruslið.
Uppáhalds lykt? (FB leikur)
Angan af regnvotum jarðvegi
ösp að vori.
Lyktin af nýslegnu grasi,
lyngmói í ágúst,
kaffi á hrollköldum morgni
kjötsúpa að kvöldi.
Þroskaðir ávextir,
ilmur af ungum manni.
Lykt skiptir mig máli. Þegar ég er ástfangin ræni ég óhreinum bol af viðkomandi fávita, til að sofa með þegar ég er ekki hjá honum.
Uppáhaldsmorgunkorn? (FB leikur)
Ég borða oftast cheerios. Stundum lifi ég á því nánast eingöngu vikum saman. En kókópuffs er betra.
Ég er haldin nostalgíu gagnvart gömlu gerðinni af kókópuffsi. Það var einhver hvít slikja utan á kúlunum og þær voru ekki eins stökkar. Það kemur alltaf illa við mig þegar einhverju sem ég nota mikið er breytt án samráðs við mig. Ég varð miður mín þegar kaffimolinn var tekinn úr makkintosinu (já ég játa, ég er svo mikill hræsnari að ég versla stöku sinnum við það skítafyrirtæki Nestle) og það kemur alltaf illa við mig þegar útlitinu á netsíðum sem ég nota mikið er breytt.
Trix fannst mér aldrei gott og ekki heldur Lucky Charms.
Ertu ennþá með hálskirtlana? (FB leikur)
Þeir voru rifnir úr mér þegar ég var fjögurra ára. Ég man ennþá þegar ég vaknaði af svæfingunni. Enginn sem ég þekkti var hjá mér, ég var dauðhrædd, fárveik og mér hefur líklega aldrei liðið verr. Einhver hjúkrunarkona laug því að foreldrum mínum að ég hefði ekki grátið þegar ég vaknaði. Ég reyndi fyrst að leiðrétta það en fékk svo mikið hrós fyrir að vera ‘dugleg’ að ég lét bara gott heita og naut lyginnar.
Fjárans kirtlarnir hafa vaxið aftur og eru víst skrímsli að stærð. Læknar sögðu mér fyrir 5 árum að þyrfti að tæta þá úr mér aftur en ég er hrædd við svæfingar og slæ því þessvegna alltaf á frest.
20 orð með upphafsstaf
Af kvikindisskap mínum tagga ég alla sem bera nöfn sem byrja á E.
Reglur: Þetta er erfiðara en virðist. Þú færir þetta yfir í þínar eigin athugasemdir, strokar út mín svör og bætir þínum svörum við. Þú þarft að nota upphafsstafinn þinn til að svara öllum spurningunum og ef manneskjan sem merkir þig hefur sama upphafsstaf þá verður þú að svara öllum spurningunum með öðrum orðum. Orðin mega ekki vera tilbúningur og þú mátt ekki nota sama orðið tvisvar. Halda áfram að lesa