Um nætur er ég hjá herra mín og þar fór það

herra-1Ung að árum lærði ég þjóðkvæði sem mér fannst álíka óhugnanlegt og Ókindarkvæði. Það hefst á línunni einum unni ég manninum og segir sögu ungrar stúlku sem á sér elskhuga í meinum. Faðir hennar kemst að því, ber hana hrottalega og gefur hana svo ríkum manni. Sá ríki verður besti vinur hennar og hún sem áður spann hör á torg og bar um nætur napra sorg, spinnur á daginn silki og lín og hvílir í örmum herra sín um nætur. Heppin!

Halda áfram að lesa →

Þegar vottar Jehóva banka upp á

Um daginn talaði ég við konu sem er svo hrædd við áhrif neikvæðra hugsana og tilfinninga að hún þorir varla að horfa á fréttirnar. Það er sko svona rosalega öflugt þetta aðdráttarlögmál að maður bara síkrítar til sín ógæfu ef maður horfist í augu við stríð og aðrar óþægilegar staðreyndir. Ég velti því fyrir mér hvað hún ætlar að gera ef hún kemur á slysstað. Þakka ‘the Universe’ fyrir að allir í báðum bílunum séu heilir á húfi og aka burt án þess að athuga málið, svona til að laða ekki að sér fleiri slys? Halda áfram að lesa →

Af hverju nýtast íslenskir kennarar svona illa?

Það er með öllu óþolandi að opinberir starfsmenn komist upp með að vinna ekki nema 35% þess tíma sem þeim fá greiddan.

Hvað er þetta fólk eiginlega að gera í vinnunni? Af hverju þurfa íslenskir kennarar svona langan tíma í undirbúning og yfirferð miðað við hin OECD ríkin? Af hverju fer meiri tími í foreldrafundi, agamál og eineltismál hjá íslenskum kennurum en kennurum í samanburðarlöndunum? Halda áfram að lesa →