Af og til birtast fréttir af undarlegum vinnubrögðum lögreglu og dómstóla, valdníðslu og jafnvel hreinu og kláru ofbeldi. Sjaldgæft er þó að kærur á hendur lögreglunni fari fyrir dóm enda kannski ekki við því að búast þegar um er að ræða stofnun sem hefur eftirlit með sjálfri sér. Það er í rauninni ótrúlegt að ekki skuli vera til nein óháð eftirlitsstofnun eða embætti sem fylgist með störfum lögreglunnar og nú þegar við sjáum fram á að frumvarp um auknar njósnaheimildir lögreglu, verði lagt fram á Alþingi, er sérstök ástæða til þess að koma slíku embætti á. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir flokkinn: Pistlar
Fyrir þá sem ekki eru á fb
Á facebook gengur nú bréf sem varðar mál Mohammeds Lo og mér finnst rétt að nái einnig til þeirra sem ekki eru þar.
Þeir sem hafa áhuga á að liðsinna Mohammed Lo, eru hvattir til að skrifa yfirvöldum. Skrifið t.d. Útlendingastofnun utl@utl.is Innanríkisráðherra ogmundur.jonasson@irr.is eða aðstoðarmanni Innanríkisráðherra halla.gunnarsdottir@irr.is.
Þeir sem ekki hafa tíma til að skrifa eða eiga erfitt með að stíla bréf, geta nýtt sér bréf sem Jóhann Páll Jóhannsson skrifaði og er svo elskulegur að leyfa frjáls afnot af.
Ég birti bréfið hér fyrir þá sem ekki eru á fb og bið ykkur um að dreifa því sem víðast.
Opið bréf til Ögmundar
Sæll Ögmundur
Nú eru liðnir 2 mánuðir frá því að við ræddum saman um mál Mouhameds Lo og enn hef ég ekki fengið vísbendingu um að neitt sé að gerast í því máli frá þinni hlið. Mouhamed er auðvitað löngu orðinn þreyttur á biðinni en nú eru fleiri en hann farnir að undrast hversu langan tíma það tekur ráðuneytið að leiðrétta mannréttindabrot. Halda áfram að lesa
Hvernig er hægt að hjálpa Mouhamed Lo?
Síðustu daga hafa margir haft samband við mig og spurt hvernig hægt sé að hjálpa Mouhamed Lo. Hann er því miður ekki sá eini sem stendur í baráttu við kerfið og ég vildi að ég kynni einhverja raunhæfari lausn á málum flóttamanna en þá að fremja valdarán í öllum Evrópuríkjum og opna öll landamæri en ég reikna ekki með að sú hugmynd fái fjöldafylgi. Halda áfram að lesa
Ólöglegar lögregluaðgerðir réttlættar
https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/341250625902374
Ögmundur og fílabrandarinn
Hann situr við eldhússborð í ókunnugu húsi. Hér mun hann dveljast þar til jákvæð niðurstaða fæst en hversu langan tíma það tekur veit enginn. Vinur hans er hjá honum. Hann bendir á hluti í eldhúsinu og nefnir þá á ensku, einn af öðrum og Mouhamed tyggur upp eftir honum. Hann verður að læra ensku ef hann ætlar að geta haldið uppi samskiptum, það var honum löngu orðið ljóst. Halda áfram að lesa
Saga strokuþræls – sagan í heild
Mouhamed Lo fæddist í ánauð einhversstaðar í suðurhluta Máritaníu. Hann telur líklegast að hann sé fæddur um miðjan desember 1988 en þar sem fæðingar þrælabarna eru hvergi skráðar, er útilokað að fá það staðfest. Fæðingarstofan var tjaldið sem foreldrar hans bjuggu í og fæðingalæknirinn ólæs kona sem hafði numið af móður sinni og hafði óljósa hugmynd ef þá nokkra, um nútíma lyf og lækningatól. Halda áfram að lesa