Ekki í mínu nafni! – Viðtal við Semu Erlu Serdar

semaerla

Liðsmenn Íslensku Þjóðfylkingarinnar hyggjast mótmæla viðtöku flóttamanna á Austurvelli kl 15 í dag. Boðað hefur verið til samstöðufundar með flóttafólki á sama stað og sama tíma undir slagorðinu Ekki í mínu nafni. Kvennablaðið tók Semu Erlu Serdar tali. Halda áfram að lesa →

„Í Afghanistan komast konur ekki af án fjölskyldu“ – Viðtal við flóttakonur sem á að vísa úr landi

Maryam og Torpikey

Mæðgurnar Torpikey Farrash og Maryam Rasí eru flóttakonur frá Afghanistan. Þær hafa dvalið á Íslandi í 11 mánuði.  Þær eru fyrstu konurnar frá Afghanistan sem sækja um hæli á Íslandi en standa nú frammi fyrir brottvísun.  Halda áfram að lesa →

Gullauga þjóðarinnar

bessastadir-688x451
Forsetinn á að vera sameiningartákn þjóðarinnar. Tákn um það sem við getum öll sameinast um. Eins og við sameinuðumst um Kristján Eldjárn, eða a.m.k. þessi 65% sem kusu hann. Alveg eins og 34% þjóðarinnar sameinuðust um Vigdísi Finnbogadóttur. Þau voru tákn sameiningar þessi tvö. alveg eins og aðrir þjóðhöfðingjar og þjóðarleiðtogar. T.d. Pútín og Margrét Danadrottning. Halda áfram að lesa →

Og Kastljósið tekur þátt í þögguninni

kastljos-688x451

Á Íslandi er nú stödd sænsk kona að nafni Pye Jakobsson. Hún er einn helsti talsmaður réttindabaráttu starfsfólks í kynlífsiðnaði og starfaði sjálf í þeim geira í mörg ár. Koma Pye til Íslands er samstarfsverkefni sænsku samtakanna Rose Alliance og Snarrótarinnar – samtaka um borgaraleg réttindi en tilefni heimsóknarinnar er sú ósvinna utanríkisráðuneytis Íslands, að standa í vegi fyrir því að starfsfólk í kynlífsþjónustu verði skilgreint sem sex workers í áliti sem unnið er að fyrir UNAIDS. Halda áfram að lesa →