Kollsteypa

Þetta er hugsað sem tölvuljóð. Þegar lesandinn sér ljóðið fyrst eru engin bandstrik í því. Þegar aðgerð er valin, skiptir tölvan einhverjum þeirra orðastrengjum sem eru með bandstriki. Valið er af handahófi hverju sinni. Ljóðið er á svörtum grunni, öll samsett orð gul, allir slitnir orðastrengir rauðir, öll hin orðin græn. Bandstrikin eru svört og sjást því ekki. Halda áfram að lesa

Af því

Af því að augu þín minna í einlægni,
hvorki á súkkulaðikex
né lokið á Neskaffikrukkunni,
þótt hvorttveggja sé mér hjartfólgið.
Af því að fjöll munu gnæfa,
fossar dynja,
og öldur gæla við fjörugrjót
látlaust, án blygðunar
og skeyta lítt um nýja strauma.
Af því, mun ég gala þér seið
við eyglóar eldroðinn sæ
og hafdjúpan himin.

 

Heilbrigðisþjónusta á tölvutæku formi

tolvVinur minn varð svo óheppinn að veikjast alvarlega í nóvember. Til að byrja með gekk illa að greina sjúkdóminn og hann hefur því þurft að hitta marga lækna og fara í grilljón rannsóknir síðan. Það kostar auðvitað grilljón peninga og grilljón mínútur líka. Það er í sjálfu sér nógu slæmt hversu dýr sérfræðiþjónusta er en það sem mér blöskrar mest við reynslu félaga míns er það hversu litla þjónustu hann hefur í raun fengið fyrir alla þá peninga sem hann hefur þurft að punga út. Ef marka má reynslu hans er greinilegt að þrátt fyrir að læknar sendi öll gögn sín á milli, heyrir til undantekninga ef læknirinn er búinn að kynna sér sjúkrasöguna áður en sjúklingurinn mætir til hans og læknar virðast oft miklu þjálfaðri í því að sýna sjúklingnum samúð en að finna lausn á vandanum. Halda áfram að lesa

Landnemaljóð

Í leit minni að heimkynnum
hef ég sleppt bæði dúfum og hröfnum
sem alltaf sneru aftur
tómnefjuð
og enn rekur bát minn fyrir straumum.

Ég játa að ég treysti hröfnum betur en dúfum,
kann betur við ís og sand en ólívugreinar
og enginn flóttamaður er ég
heldur landnemi.

Ekki veit ég
hvort hrafnar sveima
yfir fjallinu hvíta í austrinu
en hitt hef ég séð;
atað dúfnasaur
er torg hins himneska friðar.

Sprungur

Hversu lengi hef ég setið og starað á vegginn í stofunni? Ég veit það upp á mínútu en þær mínútur hafa liðið hægar en mínútur gera almennt. Það er svosem ekki mikið að sjá á þessum vegg, nema þá sprunguna eftir jarðskjálftann í fyrra. Hún hefur stækkað og gliðnað og nýjar sprungur og grynnri liggja út frá henni. Breiðast líkt örtstækkandi kógulóarvef frá miðjunni, yfir vegginn allan, allt niður að gólfi og uppundir loft. Merkilegt að veggurinn skyldi fyrst springa í miðjunni. Rétt eins himininn hafi þrýst á móti þegar jörðin tók að titra undir fótum mínum. Hversu langt ætli sé þar til veggurinn hreinlega gefur sig og hrynur yfir stofuna mína? Halda áfram að lesa

Heiðurgerð

Til eru ýmis lýsingarorð sem hafa mætti um litina og litasamsetninguna á íbúðinni sem ég bý í en „smekklegt“ er ekki eitt þeirra. Nú þegar Hollendingurinn fljúgandi er fluttur inn með allt sitt antik og fínerí er engu líkara en að frystihússgrænu veggirnir í eldhúsinu æpi á ljósa málningu. Ástarhreiðrið er málað í nærbuxnableikum lit og skakkur veggfóðursborði með afarljótum myndum af telpum í balletkjólum, hangir c.a. 15 -20 cm frá lofti. Ég hef hvergi annarsstaðar séð þessa staðsetningu á veggfóðursborða og hún kemur vægast sagt illa út. Halda áfram að lesa