Vigdís Hauksdóttir heldur áfram að opinbera kjánaskap sinn í útvarpsviðtali um afstöðu hennar til flóttamanna. Bullið í henni er efni í heila pistlaröð. Byrjum á þeirri vondu réttlætingu fyrir mannvonsku sem í daglegu tali er kölluð Dyflinnarreglan. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir flokkinn: Allt efni
Ráðherraefnið og flóttamenn
Fyrir hönd félags áhugafólks um málefni flóttamanna (áður birt í DV)
Vigdís Hauksdóttir hefur lagt fram á alþingi fyrirspurn um málefni flóttamanna.
Fyrirspurnin lýsir áhyggjum af meintri eftirsókn flóttamanna eftir óverðskulduðu hæli á Íslandi ásamt þeirri hugmynd að flóttamenn séu öðrum glæphneigðari. Þingmaðurinn spyr hvort komi til greina að láta menn sem reyna að flýja land ganga með ökklabönd. Halda áfram að lesa
Samfés reglur um klæðaburð
Brjóstaskorur bannaðar, en mega stelpur vera í stuttbuxum eða eru þær alfarið bannaðar? Eiga þær að vera í lituðum sokkabuxum ef þær eru í stuttbuxum? Mega strákar vera í stuttum kjól en ekki stuttbuxum?
https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/10151325240132963
Góð þjónusta hjá DV
Það hefur marga kosti að halda úti bloggi. Maður mótar sína eigin ritstjórnarstefnu, skrifar um það sem manni bara sýnist og þarf ekki að hafa áhyggjur af orðafjölda. En stundum skiptir máli að ná til stærri lesendahóps en fastagesta á blogginu og þá getur verið hentugt að biðja blöðin að birta grein. Oftast gera þau það en maður getur þó ekki vænst þess að aðsendar greinar séu settar í forgang. Halda áfram að lesa
Þarf ríkissaksóknari að sæta ábyrgð?
Árlega fær lögreglan 175 hleranaheimildir. Það merkir ný hlerunarheimild næstum því annan hvern dag. Heimildir hafa gilt í allt að 110 daga. Hversu lengi ætli hleranaheimildir gildi að meðaltali? Hversu margir hlerunardagar eru þetta samanlagt? Halda áfram að lesa
Í tilefni af raðstatus á Facebook …
https://www.facebook.com/Batasetur/posts/471684153025345
Þessari runkfærslu var deilt æ ofan í æ 2013 og svo aftur og aftur …
Mitt svar:
- Sterkasta fólkið er sterkast, ekki viðkvæmast.
- Það er vel hægt að sýna góðvild án þess að láta traðka á sér.
- Þeir sem stöðugt annast aðra bera sjálfir ábyrgð á þeirri ákvörðun.
- Þeir sem eiga erfitt með að segja ég elska þig, fyrirgefðu eða viltu hjálpa mér, geta fengið faglega aðstoð til að vinna á vandamálum sínum, þú þarft ekki að kóa með þeim.
- Þeir sem virðast hamingjusamir eru það venjulega.
- Ef fólk lætur þig ekki vita af því að því líði illa er það vegna þess að það kærir sig ekki um slímuga umhyggju þína. Virtu það bara.
Örlög kvenna – val karla
Ég á vin sem langaði að verða kvikmyndagerðarmaður. Þegar hann var ungur var kvikmyndagerð ekki kennd á Íslandi. Hann átti lítil börn en enga peninga og var ekki áhættusækinn. Halda áfram að lesa