Dómarinn horfði á okkur með svip sem gaf til kynna verulegar efasemdir um geðheilbrigði okkar.
-Jú. Þið eigið auðvitað fullan rétt á að verja ykkur sjálf en ég ræð ykkur eindregið frá því, nema þið séuð löglærð, sagði hún. Halda áfram að lesa
Greinasafn eftir:
Allt í járnum
Það telst ekki til tíðinda þótt börn fari upp á slysadeild eftir að hafa troðið hnetu upp í nefið á sér eða gleypt eyrnalokk. Af hverju er þetta þá fréttaefni?
Annars rifjar þetta upp fyrir mér söguna af því þegar vinur minn Siggi litli Behernd (sem er ekki lengur lítill) fann handjárn heima hjá sér og fannst upplagt að leika sér að þeim. Það fór einhvernveginn þannig að hann handjárnaði ömmu sína. Daniel var í vinnunni með lyklana í rassvasanum og varð víst hálf kindarlegur þegar kvað við í talstöðinni; Daniel Behrend, Daniel Behrend, vinsamlegast skrepptu heim og losaðu tengdamóður þína úr handjárnunum.
Öskudagsuppgötvun
Börn í Vesturbænum kunna bara eitt lag. „Krummi svaf í klettagjá“, fyrsta erindi.
Órætt
Birta: Segðu mér nú ekki að þú ætlir að fara að búa til vandamál dramadrottningin þín.
Eva: Þvert á móti, ég ætla að fyrirbyggja að það verði vandamál.
Birta: Þú tekur þessu of alvarlega. Það er ekkert að ræða, þið eruð ekki einu sinni ósátt.
Eva: Ekki núna nei, en Pegasus sagði einu sinni að flest hræðileg flugslys hefði mátt fyrirbyggja ef áhöfnin hefði tekið mark á litlu, ómerkilegu aðvörunarljósi, sem virtist bara vera „eitthvað tilfallandi“. Halda áfram að lesa
Skárra en á horfðist
Það kostaði mig 12.700 kr að taka mark á löggunni. Aldrei að trúa löggum. Jújú, kannski um það sem snýr að löggæslu en ekki því sem snýr að bílaviðgerðum. Því ef viðkomandi væri bifvélavirki þá væri hann sennilega að vinna fyrir almennilegum launum en sem þræll hjá Birni marskálk. Halda áfram að lesa
Þrjár fljótlegar leiðir til að missa vitið
1. Reiknaðu með að fólk meini það sem það segir, farðu á límingunum í hvert sinn sem einhver stingur þig í bakið en treystu honum samt aftur. Halda áfram að lesa
Torrek
Allir sem þekkja mig almennilega eru í útlöndum.
Sumt fólk verður svo stór hluti af sálinni í manni að það er óþarfi að syrgja það þegar það fer. En svo bara kemur samt að því.