Kynþáttahatarinn Sigríður Bryndís Baldvinsdóttir, einn talsmaður samtakanna Blóð og heiður hefur lýst því yfir að útúrsnúningur minn á nafni hreyfingarinnar (blóð og gröftur) feli í sér stríðsyfirlýsingu. (Sjá tjásu neðarlega í halanum.)
Já ég líki afbökun þessa ógeðfellda félagsskapar á hugmyndum forfeðra okkar um heiður, við sýkt, graftarvellandi sár á samfélagi okkar. Ef Sigríður lítur á þá líkingu sem hernað fremur en sjúkdómsgreiningu þá er henni sú túlkun frjáls. Vert er þó að hafa í huga að stríðsyfirlýsingar hafa fyrst og fremst komið frá rasistum sjálfum.
Fyrsta opinbera stríðsyfirlýsing íslenskra nýnasista var netsíðan skapari.com. Eftir að þetta fólk fór að koma fram í fjölmiðlum með andliti og nafni, tóku þau upp það ómerkilega áróðursbragð að gefa sig út fyrir að vera umhugað um fjölbreytni mannlífsins. Nú þykjast þau vilja sýna menningu annarra kynþátta sérstaka virðingu með því að halda fólkinu sem þau kölluðu „skítaskinn“ á vefsíðunni, á sínum heimaslóðum eða allavega utan Evrópu. Einn þeirra (einhver sem kallar sig Mjölni) reynir jafnvel að draga úr áherslunni á erfðafræðina, segist alveg þola „svona einn og einn“ útlending, enda þótt nafn hreyfingarinnar „Blóð og heiður“ taki af allan vafa um að grundvöllur hennar er annarsvegar hugmyndin um að „halda blóðinu hreinu“ og hinsvegar hefja harmrænasta þátt menningararfsins, heiðursmorðin sem tíðkuðust fyrir kristnitöku, til vegs og virðingar.
Fróðlegt er fyrir hvern þann sem efast um hreinræktað kynþáttahatur þessa fólks að skoða viðbjóðinn sem birtur var á umræddri síðu. Eitt af því var listi yfir íslenska „svikara“. Á honum trónaði Ólafur Ragnar Grímsson sem var sagður hafa svikið kynstofninn með því að kvænast „júðakerlingu“, besti vinur minn sem er faðir 3ja „skítaskinna“ var einnig á listnum sem og fleiri nafngreindir Íslendingar sem höfðu unnið sér það til óhelgi að elska útlending eða tala máli innflytjenda.
Einnig var að finna á síðunni áróður gegn Gyðingum og greinar og fróðleiksmola um almenna heimsku og vanhæfni svertingja til allra hluta annarra en að myrða, nauðga og stela, auk ýmiss mannfræði- og sögufróðleiks sem byggður var á sama eða álíka sterkum fræðigrunni og þann sem sjá má í svörum kynþáttahatarans Mjölnis við umfjöllun minni um kynþáttahyggju í fyrri færslum. Skapari.com er því miður ekki uppi lengur en til að fá nokkra hugmynd um boðskapinn má skoða þá netsíðu sem Sigríður Bryndís gefur nú upp sem heimasíðu sína. Í greinasafni síðunnar er t.d. efst á blaði, ræða um Gyðinga eftir helsta hugmyndafræðing þeirra, Adolf Hitler en eitt áróðursbragð nýnasista er einmitt afneitun á helförinni.
Orðræðan á skaparasíðunni var auðvitað ekkert annað en stríðsyfirlýsingi gagnvart fólki sem ekki hefur gert þeim nokkurn skapaðan hlut. Löggan var pínd til að taka skýrslu af einni mannvitsbrekkunni sem stóð að þessum hroða (og ég tek fram að ég er á móti slíkum aðgerðum) en í litlu var þessu svarað af fjölmiðlum. Nokkrir bloggarar lýstu skömm sinni og blaðamenn stóðu gapandi. Nokkrir gerðu vesældarlegar tilraunir að ræða við þau en það hefur loðað dálítið við íslensku blaðamannastéttina að gleyma því að eitt af hlutverkum blaðamanns er að vernda og virða málfrelsið en annað jafn mikilvægt að krefjast þess að viðmælendur standi fyrir máli sínu. Ég minnist þess ekki að nokkur hafi krafið þjóðernissinna svara um það hvernig greina skuli „skítaskinn“ frá hinum göfuga kynstofni hvítra eða hvort heiðurshlutinn af nafni hreyfingarinnar sé vísun í heiðursmorðahefð norrænna víkinga og hvort þeim finnist það virkilega við hæfi að tengja ofsóknir gegn saklausu fólki við sæmdarhugmyndina. Það er ótrúlegt að engin alvöru fjölmiðlaumfjöllun um þessa hugmyndafræði hafi farið fram enn, því þótt einhverjum kunni að finnast hún of óhugnanleg til að borgi sig að veita henni nokkra athygli, hafa þjóðernissinnar beinlínis hrópað á spurningar sem þeir geta ekki svarað nema gera sig að fífli. Manni gæti dottið í hug að þau séu hreinlega að biðja um hjálp en ennþá, eftir allan þennan tíma, grjótsofa fjölmiðlar.
Næsta stóra stríðyfirlýsing frá samtökum kynþáttahatara fólst í því að mæta með nasistafána í mótmælaaðgerð á Austurvelli. Fáninn var tekinn af þeim og brenndur en það er í eina skiptið sem ögrunum þjóðernissinna hefur verið svarað með öðru en umvöndunum, á opinberum vettvangi.
Þegar þetta fólk hafði árum saman leikið lausum hala í netheimum án nokkurrar alvöru gagnrýni eða faglegrar umfjöllunar fjölmiðla, hrökk einhver blaðamaður loks í gang og birti „frétt“ um það sem allir vissu nema kannski blaðamenn, að þau væru hluti af alþjóðlegri nýnasistahreyfingu. Í umræðum við þá frétt rann það fyrst upp fyrir mér að svokallaðir þjóðernissinnar væru í alvöru að reyna að innleiða þjóðarmorðsmýtuna í innflytjendaumræðuna á Íslandi. Þvælan gekk fram af mér og ég skrifaði þennan pistil.Þau skrif voru þó aðeins upphafið að umræðuefni sem virðist ætla að verða óþrotlegt; þ.e. kynþáttahyggja.
Þrátt fyrir óvenju fávitalegan málflutning virðist sem viðhorf þjóðernissinna séu að smita út frá sér. Umræðan um Mohammde Lo varð til þess að ég ákvað að skrifa pistlaröð með því markmiði að afbyggja nokkrar goðsagnir um innflytjendur og flóttamenn. Þessum pistlum var í engu beint að kynþáttahöturum, heldur að hugsandi fólki sem af skiljanlegum ástæðum hefur áhyggjur af því að aukinn fjöldi innflytjenda hafi vandamál í för með sér. Brátt létu kynþáttahatarar á sér kræla og í stað þess að leggja til umræðunnar ný sjónarmið, taka undir mínar hugmyndir eða mótmæla þeim með rökum, svo sem tíðkast í góðri og uppbyggilegri samfélagsumræðu, sáu þeir nú vefbókina mína sem kjörinn vettvang til að dreifa dellunni. Umræðan fór strax að snúast um annað en það sem var lagt upp, svosem þá bjánalegu hugmynd að fjölmenningasinnar standi fyrir „þjóðarnorði“ á hvíta kynstofninum.
Ég er fylgjandi málfrelsi og held að það sé vænlegra til að uppræta ruglhugmyndir með umræðu en þöggun, svo í stað þess að loka á ip tölurnar þeirra, bauð ég þeim til þátttöku, með því skilyrði þó að þeir gerðu almennilega grein fyrir máli sínu þótt lítil von væri til þess eftir svör þeirra við öðrum færslum. Mikið hefur síðan verið skrifað en fátt útskýrt af skynsamlegu viti en þó hafa umræðurnar varpað nokkru ljósi á óvenjulega fáfræði þessa hóps.
Ég ætlaði eiginlega að hundsa þessa fáránlegu hugmynd um yfirvofandi útrýmingu hvíta kynstofnins, því hún er bara of kjánaleg til að vera svara verð. En hræðsluáróður er öflugt tól, jafnvel þegar engin skynsemi býr að baki. Ég verð þess vör að fólk sem sér ekkert því til fyrirstöðu að lifa í sátt við útlendinga er farið að velta því fyrir sér hvort ferðafrelsi yrði til þess að hvítir menn deyi út.
Því fer fjarri að hvítir menn séu í útrýmingarhættu, hvað þá að „þjóðarmorð“ í nokkrum skilningi standi yfir. Börn jarðar eru nú um 7 milljarðar. Ég hlakka til að skoða næsta tbl. tímaritsins National Geographic en mér skilst að í því sé að finna gnægð áhugaverðraupplýsinga um mannfjöldaþróun. Ég er ekki búin að sjá blaðið en samkvæmt mínum heimildum er þar t.a.m. tafla sem sýnir mannfjölda eftir kynþáttum. Nú reikna vísindamenn National Geographic með að hvítir séu um 15% jarðarbúa. Hvernig þeir komast að niðurstöðu um það hvort múlattar og aðrir blendingar teljist svartir, hvítir eða eitthvað annað veit ég ekki en að meta það hver skuli teljast hvítur og hver ekki, er hreint ekki eins einfalt og ætla mætti. National Geograpic flokkar t.d. Mexíkana (ég neita að segja Mexíkói, lögsækið mig bara ef það fer í taugarnar á ykkur) Tyrki og Gyðinga sem hvíta en í hugum kynþáttahatara eru þeir „skítaskinn.“ Kannski nota vísindamenn National Geographic bara sömu aðferð og Mjölnir að dæma út frá útlitinu en hafa aðrar hugmyndir um hversu ljós húðlitur þurfi að vera til að teljast hvítur. Ég fæ vonandi botn í þetta þegar ég sé blaðið og ef einhver sem les þetta er búinn að sjá það, þigg ég gjarnan upplýsingar. Hvað um það, ef við drögum frá hvít „skítaskinn“ á borð við Tyrki, Mexíkana og Gyðinga, eru hvítir um 7% jarðarbúa.
7% það hljómar eins og lág tala en við erum að tala um 7% af 7 milljörðum, semsagt 490 milljónir. Jafnvel þótt hvítir væru aðeins einn af hverjum 100 jarðarbúum værum við samt 70 milljónir.
Hvítabjörninn er í útrýmingarhættu en talið er að stofnstærð hvítabjarnarins sé á bilinu 20-25 þúsund dýr.
Um 20.000 hvítir nashyrningar eru til í heiminum í dag, dæmi um stofn í útrýmingarhættu.
Stofnstærð asíutígursins er aðeins um 3200 dýr, umsvif mannsins eiga stóran þátt í fækkun þessarar dýrategundar sem er í bráðri útrýmingarhættu en menn eru þó enn ekki búnir að gefa upp von um að hægt sé að bjarga.
Snæuglan er að deyja út, aðeins um 50 fuglar eftir.
Nú er ekki sanngjarnt að bera menn saman við uglur eða nashyrninga. Það eru margir þættir sem hafa áhrif á afkomumöguleika kynstofns, svosem fjöldi afkvæma, lífslíkur afkvæma og meðalævilengd innan stofnins. Ég er ekki að láta að því liggja að ekki megi tala um útrýmingu nema aðeins um 20.000 einstaklingar séu eftir. En við þurfum ekki djúp vísindi til að sjá að það að tala um að stofn sem telur 490 milljónir einstaklinga (ef við drögum frá þá sem rasistar flokka sem „skítaskinn“) -já og þótt stofnstærðin væri „ekki nema“ 70 milljónir, sé í útrýmingarhættu Sú hugmynd er gjörsamlega fráleit enda eru það rasistar sem halda þessari hugmynd á lofti en ekki vísindamenn.
Sigríður Bryndís telur sig vera í stríði við fjölmenningarsinna, eða alla vega mig. Ekki veit ég hvaða vopn hún hyggst nota í því stríði, ekki dugar almenn þekking og rökhyggja hennar og félaga hennar, svo mikið er víst. Sjálf hef ég lítinn áhuga á því að standa í stríði en sem norn lifi ég samkvæmt lögmálinu: ég angra þig ekki að tilefnislausu, en ef þú endilega vilt leiðindi þá geturðu fengið þau. Kynþáttahatarar eru búnir að biðja um leiðindi í mörg ár og gjörið svo vel, vanþekking ykkar og heimska hefur verið afhjúpuð. Auk þess skuluð þið reikna með því framvegis að á móti hverjudrottningarviðtali sem ykkur býðst, komi öllu metnaðarfyllri fjölmiðlamaður og krefji ykkur svara því hversu hreint eða óhreint blóðið má vera til að maður losni undan skítaskinnsstimplinum og hverra heiður þið teljið ykkur vera að verja með skrifum á borð við þessi.
Umræður í framhaldi af pistlinum:
Hvítir eru 1376 milljónir, sjá hér:
http://wiki.answers.com/Q/How_many_people_of_the_world’s_population_are_white
Mjölnir og Skúli hafa báðir sagt að vegna lágrar fæðingartíðni hvítra séu þeir í útrýmingarhættu og að það taki bara um 100 til 150 ár að eyða stofninum.
Ég fékk bróðir minn (sem er stærðfræðingur að mennt) til að reikna út fyrir mig hve fljótt hvíti kynstofninn myndi þurrkast út miðað við núverandi fjölda. Hann gekk út frá versta tilviki sem hann gat fundið. Notaði fæðingartíðni Portúgals og dánartíðni þeirra einnig. Fann út hve fækkunin var mikil hvert ár, og reiknaði sig síðan niður í núll. Útkoman var að það tæki 6554,6 ár að þurrka út hvíta stofninn. Við erum sem sagt að tala um meira en sex þúsund ár ef allt fer á versta veg! Það er ekki yfirvofandi hætta!!!
Þeir bentu einnig að að fjöldi hvítra færu kannski niður í 9% innan skamms. Þessar tölur segja bara að öðrum kynstofnum fjölgar meira en hvítum, ekki að hvítum hafi fækkað um helming.
Posted by: Þorkell Á. Óttarsson | 25.08.2011 | 22:36:37