Seinbúin yfirlýsing í tilefni kvennafrídagsins

valdefling kort

Hér með kunngjörist:

Þrátt fyrir óbeit mína á fórnarlambsvæðingu kvenþjóðarinnar og þá bjargföstu sannfæringu að það sé löngu tímabært að karlar leiti réttar síns í ákveðnum málum, styð ég eindregið allar hugmyndir um að meta beri konur og þeirra störf til jafns við karla.

Ástæðan fyrir því að ég tók mér ekki frí á kvennafrídaginn er þessi; ég vinn hjá sjálfri mér og hef því ekki við neinn annan að sakast en sjálfa mig ef mér finnast launin of lág. Auk þess gera peningar mig hamingjusama.

Sumar konur vinna gegn kynbundnum launamuni með því að taka sér nokkurra klst frí einn dag á ári. Aðrar gera það með því að skammta sér launin sín sjálfar. Ég hélt upp á daginn með því að opna búðina fyrr en vanalega og selja nógu mikið til að greiða sjálfri mér, (a.m.k. þann daginn) töluvert hærri laun en meðalkarlinn fær.

Deildu færslunni

Share to Facebook

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *