Konur sem vilja láta nauðga sér

sub

Vinur minn varð eitt sinn fyrir óþægilegri reynslu. Hann hitti konu á netinu og þau ákváðu að hittast og eiga skyndikynni. Þau hittust á veitingastað, hún lýsti fyrir honum draumi sínum um að vera tekin með valdi. Hann sagðist ekki vera neinn nauðgari, flýtti sér burt sem hraðast og hefur varla þorað að vera einn með kvenmanni síðan.

Ég held að það hafi verið mjög skynsamleg ákvörðun hjá honum að pilla sig burt. Gæti komið sterkum manni, og jafnvel karlmanni sem er hreint ekkert sterkur, í slæm vandræði að leika slíkan leik við bláókunnuga manneskju.

Hitt er svo annað mál að konan var EKKI að biðja um að láta nauðga sér. Hún var að lýsa leik þar sem nauðung er sviðsett. Leik sem á jafn mikið skylt við ofbeldi eins og nauðgun sem er leikin fyrir framan kvikmyndavél eftir handriti með fullu samþykki leikaranna. Munurinn er sá að hún vonaðist ekki til að fá Óskarinn fyrir leikinn heldur einhverskonar spennukikk.

Nauðgun á ekkert skylt við drottnunarleiki. Nauðgun er í eðli sínu það að eiga kynmök við aðra manneskju gegn vilja hennar, það er því ekki hægt að nauðga konu (eða karli ef því er að skipta) með samþykki hennar.

Til er fólk sem hefur nautn af því að vera slegið, bundið og keflað. Það eru til dæmi um fólk sem vill láta skíta á sig og singa nálum undir neglurnar á sér. Jafnvel fólk sem vill láta höggva af sér útlim. Sumt af þessu fólki er svarthært. Þ.a.l. hlýtur svarthært fólk að vilja láta beita sig ofbeldi. Eða hvað?

Ég get alveg skilið að það þurfi að útskýra muninn á alvöru ofbeldi og drottnunaleikjum fyrir grunnskólakrökkum. Ég get skilið að það þurfi að útskýra þetta fyrir fólki með Asperger heilkenni eða þroskahömlun. En að það þurfi virkilega að útskýra það fyrir fullorðnum mönnum með greindarvísitölu yfir frostmarki, að þótt til séu konur sem hafa áhuga á drottnunarleikjum þá gefi það körlum ekki leyfi til að nauðga feministum, það finnst mér með ólíkindum.

Hér með tilkynnist: Ef þú fréttir af svarthærðum einstakling sem einhverntíma hefur lýst fyrir einhverjum, draumi um að vera bundinn og keflaður, þá merkir það ekki að þú megir koma viðkomandi að óvörum og binda hann og kefla. Því síður merkir það að þú megir ráðast á hvaða svarthærða mann sem er og binda hann og kefla. Þú mátt heldur ekki eiga við konu kynferðislega nema hún hafi áður gefið upplýst samþykki fyrir því. Jafnvel þótt einhver önnur kona (eða jafnvel hún sjálf) hafi einhverntíma lýst áhuga á drottnunarleik, þá máttu ekki leika neinn slíkan leik við konu eða karl gegn vilja viðkomandi. Ekki heldur þótt hún sé yfirlýstur feministi.

Og ef þú ert ekki viss, farðu þá að dæmi vinar míns og pillaðu þig á brott hið snarasta.

Deildu færslunni

Share to Facebook

One thought on “Konur sem vilja láta nauðga sér

  1. —————————-

    Jamm…

    Posted by: Gestur | 2.03.2011 | 18:27:25

    Nákvæmlega!

    Posted by: Hulda H. | 2.03.2011 | 21:32:51

    Já en kæra norn. það virðist engu að síður ljóst að fyrir allmörgum þarf að útskýra þetta á nákvæman hátt. Þú gerir það allvel hér. Ég vona að þessi leiðsögn þín fari víða.

    Posted by: Anna María | 3.03.2011 | 18:44:34

    Þetta er afar greindarlegt. Gott að konur vilji nákvæmlega hvað þær vilja drottnunarleik en ekki nauðgun. Það hlýtur að liggja mikil frelsistilfinning í því. Þetta er frábær boðskapur!

    Posted by: Lalli | 3.03.2011 | 18:48:56

    Og auðvitað að huga að öryggisorði þegar óreyndir leika saman.

    Posted by: Balzac | 3.03.2011 | 22:09:29

    augljóst: Baldur dreymir um að nauðga konu – annars dytti honum aldrei í hug að segja svona

    Posted by: Halldór Carlsson | 4.03.2011 | 0:19:38

    Tveir þumlar upp, *like* og h5, og hvað annað fólk gerir til að láta vita að því líki. Þú gerir daginn minn bjartari.

    Posted by: Ása | 4.03.2011 | 4:10:10

    Er ekki mögulegt að eitthvað sem átti í byrjun að vera „drottnunarleikur“ þróist yfir í eitthvað annað að áliti konunnar ( en ekki endilega að áliti mannsins, sem kannski þekkir konuna ekkert ) Er ekki verið að leika sér að eldinum? Mér finnst höfundur vera að segja, ég vil gleypa eld en ég vil ekki brenna mig.

    Posted by: Vigdís | 4.03.2011 | 6:01:56

    Er ekki mögulegt að eitthvað sem átti í byrjun að vera „drottnunarleikur“ þróist yfir í eitthvað annað að áliti konunnar ( en ekki endilega að áliti mannsins, sem kannski þekkir konuna ekkert ) Er ekki verið að leika sér að eldinum? Mér finnst höfundur vera að segja, ég vil gleypa eld en ég vil ekki brenna mig.

    Posted by: Vigdís | 4.03.2011 | 6:02:47

    Það er nákvæmlega sama hvort það er drottnunarleikur eða eitthvað annað, öll samskipti geta þróast á óæskilegan hátt og það er sérstaklega viðkvæmt þegar um kynlíf er að ræða. Hættan á því að eitthvað þróist á einhvern veg er engin afsökun fyrir því að gera ekki greinarmun á leik og ofbeldi og þeir sem skilja þann mun ekki ættu bara að leika sér einir.

    Posted by: Eva | 4.03.2011 | 16:31:29

    Og Lalli, það er til fullt af fólki af báðum kynjum sem veit ekki hvað það vill. Ef sú (eða sá) sem þú er með veit ekki hvað hún vill, þá er það að reyna að koma henni í skilning um það með ofbeldi, mjög vond hugmynd.

    Posted by: Eva | 4.03.2011 | 16:44:27

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *