Lifandi satíra

Þann 11. júlí sl. birti ruv.is viðtal við sænska leikarann Michael Nyqvist. Eftirfarandi ummæli hans vöktu athygli mína:

Það er eitthvað skrýtið, og smá viðbjóðslegt við Svíþjóð. Þú þarft alltaf að vera pólitískt kórréttur en á sama tíma mjög víðsýnn. Það leiðir af sér lifandi satíru sem er illþýðanleg.

Halda áfram að lesa →

Þetta er nú dálítið vangefið

Kæra Freyja

Það er enginn að gera lítið úr fötluðum með því að benda á hið augljósa, að fötlun skerðir möguleika fólks á að vera sjálfbjarga.

Ég ber mikla virðingu fyrir þinni baráttu fyrir réttindum fatlaðra og finnst þú stórkostlegur karakter. En ég er fegin að vera ekki í þinni aðstöðu og ég mér finnst jákvætt þegar tekst að ráða við sjúkdóma sem með tímanum valda fötlun. Mér þætti líka jákvætt að vilja koma í veg fyrir að ríkisútvarpið lamist. Lamist í þeirri merkingu að geta ekki sinnt hlutverki sínu, alveg eins og lamaður líkami getur ekki sinnt þörfum manneskjunnar sem hann hýsir.

Þroskaheftir síamstvíburar eða tvíhöfða asni?

20010303-300x286Andri Snær Magnason hefur beðist afsökunar á því að nota orðin þroskaheftur síamtvíburi um væntanlega ríkisstjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks.  Afsökunarbeiðninni beinir hann ekki til stjórnar og félagsmanna umræddra flokka heldur til fatlaðra.  Móðgunin felst þó ekki í því að líkja fötluðum við þessi ógeðfelldu stjórnmálaöfl heldur í því að tala um fötlun sem eitthvað neikvætt.

Halda áfram að lesa →

Hvað er pólitískur rétttrúnaður?

Í opinberri umræðu ber alltaf á einhverjum tískuhugtökum.Fyrir 10-12 árum komst varla nokkur maður í gegnum þriggja mínútna útvarpsviðtal án þess að koma orðinu „stærðargráða“ einhversstaðar að. Meira ber þó á hugtökum sem fela í sér gildisdóma, orðum sem verða nánast eins og töfraþula, svar við öllu og hentug leið til að loka umræðunni. Árið 2009 klæmdust netverjar á orðinu „meðvirkni“ þar til það missti nánast merkingu sína. Varla er hægt að kalla það tísku að tala um aðför og einelti gegn stjórnmálaflokkum; það fer nú sennilega að teljast sígilt. Halda áfram að lesa →