Orð dagsins er vel.
Kemur vel fyrir.
Vel á sig kominn.
Vel hærður.
Vel tenntur.
Vel stæður.
Vel máli farinn.
Vel að sér.
Sennilega vel gefinn og vel gerður á allan hátt.
Vel ég einhvern sem er haldinn arabafóbíu?
Sjálfsagt er vandfundinn maður sem ekki væri hægt að setja eitthvað út á en væri ekki frekar heimskulegt að stofna beinlínis til fjölskyldustyrjaldar?
Ég stoppaði ekki lengi. Fékk sms frá húsráðanda „honum finnst þú algjör dúlla“.
Jæja.