Er trúleysi trúarbrögð?

truleysiSvarið er nei. Trúleysi er ekki trúarbrögð.

Það hefur aldrei farið neitt ógurlega í taugarnar á mér þótt trúað fólk haldi því fram að trúleysi sé í raun trú. Það er bara ekki við mjög skynsamlegum hugmyndum að búast frá fólki sem sér ekki í gegnum rökvillu á borð við afl sem er í senn algott og almáttugt. Halda áfram að lesa

Nýtt vandamál?

ísÞegar ég var lítil fékk ég stundum ís í brauðformi með súkkulaðidýfu.
Fullkominn ís, sem leit út eins og á mynd í skólabók. Kramarhúsið niður, ísinn upp, dýfan heill hjúpur. Maður hélt utanum kramarhúsið, beit súkkulaðihjúpinn varlega utan af og sleikti ísinn.
Ég bið enn um það sama þegar ég fæ mér ís. Ís í brauðformi með dýfu. Ekkert kurl eða neitt svoleiðis. Halda áfram að lesa

Áramótaheitið ætlar að halda

Þegar ég mætti í fyrsta tímann reiknaði ég fastlega með því að meirihluti orkunnar færi í að halda mér í hver-ætti-svosem-að-mega-vera-að-því-að-góna-á-mig gírnum, slettandi appelsínuhúðinni meðal átján ára álfakroppa.

Það hefur samt lítið reynt á sjálfstraustið því flestar þeirra reyndust vera hinar húsmóðurlegustu júffertur og álíka kýrlegar í hreyfingum og ég sjálf. Annars fer orkan í að fylgjast með og reyna að samhæfa mjaðmir, arma og fótleggi svo maður má svosem ekkert vera að því að horfa á hinar.

Það merkilega er að ég þarf ekkert að hafa fyrir því að vera jákvæð. Ég hef ekki viljað slá neinu föstu um það fyrr, en nú er ég búin að mæta í fimm tíma og hlakka til að mæta á morgun. Án þess að hafa eytt svomiklu sem fimm mínútum í að heilaþvo sjálfa mig.

Það er semsé til hreyfing sem er skemmtileg í eðli sínu.
Magadans.

Meirihlutinn hefur ekki endilega rétt fyrir sér

simpsons_torch_mobÉg vil hafa lýðræði. Ekki af því að það sé fullkomið stjórnunarform, heldur af því að ég þekki ekkert skárra. Nema kannski menntað einveldi. Gallinn er bara sá að þeir sem vilja taka að sér að vera einvaldir hafa ekki siðferðilega hæfileika til þess, eins og best sést á Gvuði. Halda áfram að lesa

Menningarhelgi

Ég átti góða helgi með Darra (sem er eiginlega engin pysja lengur). Sáum Manntafl á laugardagskvöldið, ég heyrði söguna lesna í útvarpið þegar ég var krakki og hef alltaf hrifist af henni. Varð sannarlega ekki fyrir vonbrigðum með Túlíneus í öllum hlutverkum. Halda áfram að lesa

Viðskiptatækifæri

-Ég er orðin svo leið á þessu basli. Það er alveg sama hvað ég vinn mikið, ég á aldrei afgang, sagði hún.
-Trixið er fólgið í því að halda sama lifistandard þótt tekjurnar hækki, sagði ég. Ekki kaupa þér föt sem þig vantar ekki, tala meira í símann eða hafa dýrari mat þótt þú takir aukavinnu eða klárir að borga upp eitthvert lán.
-Ég veit það svosem, svaraði hún, og ég dáist að þér. Málið er bara að ég gæti ekki lifað eins og þú.
-Hvernig þá?
-Bara, gert aldrei neitt og borðað þennan mat sem þú borðar.
Halda áfram að lesa