Ævintýrasigling

13515413_10208663025708550_1676412800_n

Stykkishólmur er fallegri en ég hélt. Við höfðum hugsað okkur að fara í stutta siglingu um Breiðafjarðareyjar ef veðrið yrði gott. Stutta siglingin reyndist ekki vera í boði en þar sem veðrið var eiginlega of gott til að fara ekki í siglingu tókum við 2ja og hálfstíma ævintýraferð og sjáum sko ekki eftir því. Halda áfram að lesa →

Huh

612602EM afstaðið svo vonandi er nú þjóðernisstandpína síðustu vikna eitthvað að hjaðna.

Ég veit ekki hversu margir það voru sem mættu á Arnarhól og nærsveitir til að húa á landsliðið. Örugglega fleiri en á Wintris-mótmælin. Fleiri en á Gay-Pride. Sennilega fleiri en á Menningarnótt. Halda áfram að lesa →

„Í Afghanistan komast konur ekki af án fjölskyldu“ – Viðtal við flóttakonur sem á að vísa úr landi

Maryam og Torpikey

Mæðgurnar Torpikey Farrash og Maryam Rasí eru flóttakonur frá Afghanistan. Þær hafa dvalið á Íslandi í 11 mánuði.  Þær eru fyrstu konurnar frá Afghanistan sem sækja um hæli á Íslandi en standa nú frammi fyrir brottvísun.  Halda áfram að lesa →