Þjóðþekktur maður og ung unnusta hans liggja undir grun um að hafa framið svívirðilegan glæp. Meira en þrír mánuðir eru liðnir síðan stúlkan lagði fram kæru. Á þessum 14 vikum sem liðnar eru frá því að málið komst í fjölmiðla, hefur lögreglan sent málið til ríkissaksóknara, sem aftur henti málinu í lögguna. Löggan hefur væntanlega komist að þeirri niðurstöðu að málið sé dómtækt því nú berast fréttir af því að ríkissaksóknari ætli að taka sér tvo mánuði í að ákveða hvort hún gefur út ákæru eður ei. Halda áfram að lesa
Sagði satt fyrir landsdómi
Sá sögulegi atburður hefur átt sér stað að vitni sagði satt fyrir landsdómi.
Var vitnið, Hrútur Hrappsson, feðraveldisfulltrúi, spurt um þátt klámvæðingarinnar í aðdraganda hrunsins. Skýrði Hrútur skilmerkilega frá því að Fjármálaeftirlitið hefði, án útboðs, keypt upp lager af grímubúningum og öðrum dónaskap af klámbúllu í eigu frænda eins manns.
Þegar vitnið var krafið um skýringar á tiltæki sínu, kvað það þessa óvenjulegu sannleiksást vera „sjálfsprottna í einhverju lýðræðisflippi“. Baðst Hrútur þegar í stað afsökunar á framburði sínum.
„Það var ekki ætlunin að særa neinn. Ég var bara í krúttkasti, þú’st, búinn að liggja yfir Pedobear með sleikjó og svona og datt í hug að sannleikurinn yrði dáldið skondið sjónarhorn í umræðuna. Ef það hefur sært eitthvunn þá segi ég bara sorrý,“
Hrútur Hrappsson í krúttkasti
Myndin er sviðssett
Hvað á að gera við svona menn?
Og vitanlega stukku einhverjir á þá túlkun að allar konur séu lygasjúkar druslur og að best sé að klappa grey nauðgurunum á bakið, leyfa þeim óáreittum að nauðga og meiða.
Sumir hengja sig í tveggja prósenta kenninguna, rétt eins og það bara sé allt í lagi að fórna tveimur saklausum til þess að ná 98 sekum. Halda áfram að lesa
Hvað má það kosta?
Fyrir um 35 árum, vaknaði ung móðir í vesturbænum um miðja nótt, við að ókunnugur maður var kominn upp í rúm til hennar. Hann var með grímu fyrir andlitinu og hélt hnífsegg við hálsinn á henni. Halda áfram að lesa
Bleikt
Ógnvekjandi einkennisbúningar?
https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/10150600051867963
https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/10150600383162963
Hvernig forseta?
https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/10150599298657963