Mér finnst rigningin góð. Þ.e.a.s. rigning eins og í dag. Ég man ekki hvenær ég var úti í svona úrhelli síðast, það hljóta að vera mörg ár. Við þurftum að borða nestið inni í bílunum, annars hefði það orðið að brauðsúpu. Halda áfram að lesa →
Í dag er alþjóðadagur grasrótarheyfinga gegn stóriðju. Þeir sem standa að þessu degi eru m.a. Saving Iceland, Rise Against í Trinidad, Earthlife Africa í S-Afríku, Alcan´t í Indlandi, Movement of Dam Affected People í Brasilíu og Community Alliance for Positive Solutions í Ástralíu. Allar þessar heyfingar eiga í höggi við sömu fyrirtækin en þar ber hátt nöfn eins og Rio-Tinto, Alcan og Alcoa.