Við sem hvorki erum karlar né konur

indexVitur kona sagði eitt sinn „Það er eðlilegast og hollast fyrir konur að vera ekki að koma karlmönnum mikið inn í heim varalitsins og maskarans því þá dettur allur sjarmi niður!“

Á þeim tíma hélt ég að þessi hugsunarháttur einkenndi aðeins örfáar manneskjur en í dag veit ég betur. Í dag veit ég að munurinn á karli og konu felst í því að konur hafa áhuga á útliti sínu, snyrtivörum og kynlífi en ekki samfélagsmálum. Konur lesa skvísubækur og horfa á Sex & the City. Karlar hinsvegar, þeir eru bara svona allskonar. Halda áfram að lesa →

Það nauðgar enginn konu að gamni sínu

Forsíðufrétt gærdagsins vakti mér óhug en þó fyrst og fremst hryggð.

Harmleikur, örvænting, neyð, voru fyrstu orðin sem komu upp í hugann. Þrátt fyrir hryllinginn fann ég til samúðar með stúlkunni. Ég ímyndaði mér að hún hlyti að vera búin að ganga í gegnum miklar þjáningar og að hún væri á einhvern hátt fórnarlamb aðstæðna fyrst hún gat gert sig seka um slíkt voðaverk. Það kom illa við mig að sjá upphrópanir á borð við grimmd, kvikindi, útlendingur. M.a.s. orðið barnamorðingihljómaði á einhvern hátt yfirgengilegt enda þótt þarna hafi barn vissulega verið myrt. Halda áfram að lesa →

Kvenhetjur í barnaefni – hafa fjölmiðlar áhrif?

disney

Fjölmiðar móta okkur. Hljóta að gera það. Fyrirtæki myndu ekki verja skrilljón trilljónum í auglýsingar ef þær skiluðu ekki hagnaði. Við sjáum líka áhrif kvikmynda og annarra miðla á það hvaða vörur ná vinsældum. Disney þetta Disney hitt, bleikt með glimmer fyrir stelpur og eitthvað öllu töffaðra fyrir stráka. Halda áfram að lesa →