Samræmd viðhorfapróf?

Það er ekki ný hugmynd að stofnanir ríkisins eigi að móta áherslur í siðferðilegu uppeldi barna. Kirkjan hafði til skamms tíma svo til óheftan aðgang að skólabörnum og grunnskólum var bókstaflega ætlað að ala börn upp í guðsótta og góðum siðum.

a_modern_village_school-_education_in_cambridgeshire_england_uk_1944_d23624-300x296 (1)Hversu mikinn árangur það bar vitum við lítið um. Önnur viðhorf en hin kristilegu voru ekkert uppi á borðinu og flest börn hefðu líklega tileinkað sér kristindóminn þótt skólinn hefði aldrei nefnt hann einu orði. Við vitum aftur á móti að margt fólk sem ólst upp í þessu andrúmslofti, og fékk fínar einkunnir á kristnifræðiprófum, gekk af trúnni. Við vitum að margt fólk sem nú er á miðjum aldri og ólst upp við bænahald í skólum neitaði að fermast eða skráði sig úr Þjóðkirkjunni síðar. Í sumum tilvikum hefur þetta fólk barist ötullega gegn trúarlegri innrætingu í skólum, með þeim árangri að það þykir ekki lengur við hæfi að skólar skipti sér af trúaruppeldi barna. Halda áfram að lesa →

Hinsegin fræðsla frá fyrsta bekk og uppúr?

börn2

„Hinsegin fólk“ hefur verið ofsótt í gegnum tíðina og þótt ótrúlega mikið hafi unnist sætir það enn fordómum. Nú á að uppræta þá fordóma með því að búa til sérstaka námsgrein fyrir grunnskólabörn – hinseginfræðslu. Ekki fræðslufund fyrir unglinga heldur námsefni fyrir börn frá fyrsta bekk og upp úr. Halda áfram að lesa →