Í dag standa þrjú ráðuneyti að klámráðstefnu í Reykjavík. Engum sem vinnur í klám og kynlífgeiranum var boðið að tjá sig. Ástæðan mun vera sú að sálir kvenna eru staðsettar í píkunni. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir merki: fasystur
Af feminiskri stjarnfræði
Svör Elfu Jónsdóttur við síðasta pistli mínum (svörin sjást í umræðuþræði við færsluna) eru athyglisvert dæmi bæði um þann hugsunarhátt og þá aðferðafræði sem einkennir íslenska dólgafeminista. Elfa telur allt í lagi að slaka á sönnunarkröfum í kynferðisbrotamálum, vegna þess að líkurnar á því að maður sé dæmdur að ósekju séu „stjarnfræðilega“ litlar. Halda áfram að lesa
Líka afi minn!
Prófaðu að segja hópi átta ára barna spennandi sögu af stelpu sem fer með afa sínum á sjóinn. Gefðu svo börnunum tækifæri til að deila reynslu sinni af sjómennsku.
Einhver úr bekknum réttir upp hönd og segir frá því að hún hafi farið með afa sínum á báti út á vatn rétt hjá sumarbústaðnum og þau hafi veitt silung. Annar hefur farið með Herjólfi til Eyja. Þriðja barnið hefur séð geit í Húsdýragarðinum og finnst sú saga eiga vel heima í umræðunum. Halda áfram að lesa
Er Egill Einarsson alþjóðlegt glæpagengi?
Feministar hafa haldið því fram að fimmtán mansalsmál hafi komið upp á Íslandi, en um leið er þó dregið í land; „einhver“ þessara mála voru sko ekki mansalsmál en það er allt í lagi, stór fyrirsögn í DV dugar til að villa um fyrir almenningi. Halda áfram að lesa
Tölum um klám
Og af því að þú ert nú sennilega með það á hreinu að ég ætla ekki að fara að vanda um fyrir þér eða ljúga því að þér að þú verðir nauðgari af því að skoða klám, langar mig að biðja þig að hlusta aðeins á mig. Þú mátt gjarnan svara líka. Halda áfram að lesa
Hver er tilgangurinn með þessari nauðgaraumræðu?
Þessar stórkostlegu forvarnartillögur komu fram í tengslum við druslugönguna og nú skýtur þeim aftur upp. Varla er neinn svo vitlaus að halda að þessi snepill hafi raunverulegt forvarnagildi svo ég bara auglýsi eftir tilganginum með þessum skrifum. Halda áfram að lesa
Feitabollufræði
Jájájá og svei mér þá. Ég er nú bara rétt að byrja að skoða þetta og jú, það bendir allt til þess að feitabollufræðin séu enn ein gervivísindagreinin. Halda áfram að lesa