Grýla gamla og feðraveldið

download (1)Ef þjóðtrúin segir okkur eitthvað um samfélagið sem hún er sprottin úr þá segja breytingarnar á henni væntanlega eitthvað líka. Það er ekki lengur viðurkennd uppeldisaðferð að hræða börn til hlýðni með því að siga á þau óvættum og með breyttum viðhorfum breyttust jólaskrímslin. Það er áhugavert að skoða ímyndir óvætta eins og Grýlu og jólasveinanna fyrr og nú. Halda áfram að lesa →

Kynungabók og vinnumarkaðurinn

skúra
Í fyrri pistlum um Kynungabók, gagnrýndi ég það hve lítið vægi hún gefur stærstu vandamálum karla og drengja. Í fjölskyldukaflanum er ekkert fjallað um veika stöðu feðra í forræðismálum og í skólakaflanum er sá mikli fjöldi drengja sem þrífst ekki í skóla ekki einu sinni til umræðu. Á vinnumarkaði hallar meira á konur en karla svo það er kannski eðlilegra að þar sé sjónarhorn kvenna ríkjandi. Engu að síður hef ég nokkrar athugasemdir. Eða eiginlega margar. Halda áfram að lesa →

Efnistök Kynungabókar – söguskoðun og fjölskyldan

feður

Tilefni þessarar pistlaraðar eru ítrekuð ummæli um að ég sé að gera feministum upp skoðanir. Ætlun mín er að gera í eitt skipti fyrir öll grein fyrir því á hverju ég byggi hugmyndir mínar um markmið hreyfingarinnar. Í fyrri pistlum hef ég bent á dæmi um það hvernig kvenhyggjufólk er að koma á nýju kennivaldi, m.a. með því að koma áróðri sínum inn í barna- og unglingaskóla.   Halda áfram að lesa →