Það er nokkuð sem ég hef velt fyrir mér undanfarið og lætur mig ekki í friði. Mér líður eiginlega óeðlilega vel. Óeðlilegt ástand bendir líklega til þess að eitthvað sé ekki eins og það á að vera, hvort sem það er jákvætt eða neikvætt. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir flokkinn: Sápuópera
Makaleit
Var beðin um pistil fyrir nýjan veiðivef, makaleit.is fékk pening fyrir hann og allt. Vííí!
Fyrsti textinn sem ég sýndi þeim þótt samt of dónalegur til að vera birtingarhæfur á svona siðprúðum vef. Að vísu engin klúryrði eða neitt svoleiðis svo mér dettur helst í hug að hrifing mín á Elijah Wood hafi þótt merki um hobbitablæti eða álíka pervasjón. Mér skilst að þetta sé vefur fyrir fólk sem hugsar ekki um kynlíf og svoleiðis dónaskap. Vill bara haldast í hendur og tala um ástina eða eitthvað í þá veru. Allt efni stranglega ritskoðað og enginn dónaskapur umborinn. Kannski hugsanlegt að þar sé hægt að kynnast karlmanni sem er ekki haldinn krónískri skuldbindingarfælni en ég held samt ekki að ég skrái mig þarna. Fíla bara ekki ritskoðun. Heldur ekki á efni þar sem hvergi er minnst á Elijah Wood og álíka dónaleg fyrirbæri.
Útsölukjóll
Í maí 2004 mátaði ég kjól. Hann passaði mér næstum því alveg, hefði bara þurft einn lítinn smásaum, bara örfá spor til að hann yrði fullkominn. Ég var að hugsa um að borga inn á hann en gerði það ekki. Var svo viss um að engin önnur gæti notað hann. Veit ekki hvað ég var að horfa á í borg þar sem allt morar af litlum gulum konum sem virðast hafa meðfædda hæfileika til að finna þessar fáu flíkur sem til eru í mínu númeri. Ég stofnaði hins vegar bankabók sem ég greiddi inn á svolitla upphæð, bara pínupínulítinn hluta af verðinu sem ég fékk fyrir húsið mitt. Halda áfram að lesa
Krossgátuhnoss
Æ þetta var svo notalegur dagur. Hef verið heima að væflast um á náttsloppnum og sötra kappútísnó. Fékk leikfélaga í heimsókn, m.a.s. strák.
Hitti hann í hendingu í gær, manninn sem veit ekki í hvorn fótinn hann á að stíga, og stakk upp á leik. Halda áfram að lesa
Bara heilbrigt
Ég hef haft svo miklar áhyggjur af Pysjunni minni. Hann hefur verið frekar einangraður félagslega alveg síðan hann var 8-9 ára. Hann eignaðist ekki stóran vinahóp þegar hann var krakki, átti kannski 1-2 vini og ekkert endilega krakka sem hann hafði greiðan aðgang að. Hann var bara einn ef þeir voru ekki til staðar og hafnaði samskiptum við önnur börn nánast algerlega. Síðustu 2 árin hefur hann bókstaflega engan félagsskap haft af skólafélögunum sínum utan skólans og í raun ekki umgengist jafnaldra sína neitt. Halda áfram að lesa
Pysjan er að fá málið
Pysjan er tekinn upp á því að setjast á rúmstokkinn hjá mér til að spjalla við mig á kvöldin. Jess! Ég vann! Halda áfram að lesa
Sýndarveruleikaraunsæi
Ég er búin að bæta Yfirnorn Naflalóar á tenglalistann.
Reyndar hélt ég lengi því plani að setja ekki inn tengla á aðra en þá sem koma við sögu en þar sem flestir þeirra sem hafa fengið tengil hjá mér eru óttalegir bloggletingjar og ég hef auk þess fundið nokkra snillinga sem eru svo skemmtilegir að ég lít á síðurnar þeirra vikulega eða oftar, er ég að endurskoða þessa stefnu. Halda áfram að lesa