Versta syndin

Birtingarmyndir dauðasyndanna sem samfélagseinkenna hafa verið mér hugleiknar í dag.

Hrokinn birtist í hverskyns valdníðslu. Við glímum við vandamál vegna hroka mannsins gagnvart náttúrunni. Lítill hluti einnar þjóðar telur sig svo rosalega innundir hjá Gvuði að það réttlæti bæði landtöku og þjóðarmorð. Borgarstjórn Reykjavíkur er skipt út álíka oft og tesíunum í Nornabúðinni og ekki eru kjósendur spurðir álits. Halda áfram að lesa

Dauðasyndirnar dásamlegu

Það sem mér finnst athyglisverðast við nýju dauðasyndirnar er að það er í raun engin þörf fyrir þær. Þótt ég hafi almennt litlar mætur á kirkjulegu valdi, má Gregorius gamli páfi (eða var það ekki hann sem kom dauðasyndunum í tísku á 6. öld?) þó eiga það að hann náði að dekka nánast allt sem gerir mannskepnuna ógeðfellda með rexinu um dauðasyndirnar. Halda áfram að lesa

Tittlingaskítur

Kunnugleg andlit allsstaðar. Á vissan hátt er það notalegt. You wanna be where everybody knows your name. Aðallega er það þó sorglegt. Kannski 100 hræður, max, og ég þekki allavega 75 í sjón. Sumir eru í Félaginu Ísland-Palestína, sumir í Amnesty, fólk úr samtökum hernaðarandstæðinga, virkasta liðið frá Saving Iceland, kjarninn úr menningar- og friðarsamtökum íslenskra kvenna, nokkur vinstrigræn andlit sem ég þekki ekki úr neinni þessara hreyfinga en eru þá áreiðanlega í einhverjum friðar- eða náttúruverndarsamtökum sem ég hef ekki unnið með.

Halda áfram að lesa

Útifundur vegna skálmaldarinnar á Gaza

Stöðvum fjöldamorðin

Rjúfum umsátrið um Gaza
Útifundur á Lækjartorgi, miðvikudaginn 5. mars, 12:15
Efnt verður til útifundar á Lækjartorgi í hádeginu á morgun, miðvikudaginn 5. mars klukkan 12:15, til að mótmæla blóðbaðinu á Gazaströnd.
Kröfur dagsins eru: Stöðvum fjöldamorðin og rjúfum umsátrið um Gaza.
Ræðumenn verða Katrín Fjeldsted læknir og Ögmundur Jónasson alþingismaður.
Fundarstjóri er Sveinn Rúnar Hauksson formaður Félagsins Ísland-Palestína. Halda áfram að lesa

Dööö!

Af hverju er það stórfrétt að hlutfallslega færri Pólverjar en Íslendingar hafi fengið á sig kærur en hinsvegar ekki minnst orði á að Litháar og Bretar séu samkvæmt þessari könnun mun meiri glæpahundar en landinn? Hverjir frömdu alvarlegu glæpina og skiptir það í raun einhverju máli? Hvaða kjána dettur í hug að fjöldi ákærðra í svona litlu samfélagi segi eitthvað um glæpahneigð eftir þjóðerni? Halda menn t.d. að Bretar séu líklegri til að fremja morð en Íslendingar eða gæti þetta háa hlutfall glæpabreta kannski staðið í einhverju sambandi við þá staðreynd að langflestir þeirra sem tóku þátt í mótmælaaðgerðum umhverfissinna í sumar (og voru sumir hverjir kærðir fyrir það eitt að dansa á Snorrabrautinni) voru Bretar?

Ég hef enga trú á því að Pólverjar séu löghlýðnari en Bretar en kannski halda þeir sem tóku að sér að setja fram og túlka niðurstöður þessarar einkar óvísindalegu rannsóknar að þeir séu að gera Pólverjum einhvern sérstakan greiða. Sennilega standa líkurnar á því að fólk brjóti af sér bara ekki í neinu sambandi við þjóðerni.