Undanfarið hef ég beint sjónum mínum að unglingum sem skaða sjálfa sig, ýmist með hættulegum megrunaraðferðum eða með því að veita sjálfum sér áverka. Viðmælandi minn er 15 ára stúlka. Hún byrjaði að skera sig þegar hún var 13 ára og er með ör eftir skurði víða um líkamann. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir flokkinn: Pistlar
Sjálfsköðun
Síðasta miðvikudag sagði ég frá netsamfélögum sem líta á átröskun sem lífsstíl. Á sama hátt eru til netsamfélög ungmenna sem álíta það eðlilega aðferð til að takast á við tilfinningar, að skera sig, brenna, hárreyta sjálfan sig eða skaða á annan hátt. Sjálfssköðun virðist mun útbreiddari meðal stúlkna en pilta. Sumir telja þó að piltar feli áverka betur og skaði sig frekar með höggum en eggvopnum sem geri þeim auðveldara að skálda upp skýringar. Halda áfram að lesa
Þegar átröskun er lífstíll
Þegar ég var unglingur hafði fullorðna fólkið áhyggjur af „eiturlyfjadjöflinum“, hraðakstri og ótímabærum barneignum. Þetta voru svona um það bil þær aðferðir sem mín kynslóð notaði til þess að fara sér að voða. Halda áfram að lesa
Nímenningamálið hið nýja
Níu manns sæta ákæru í Gálgahraunsmálinu. Glæpur þeirra er sá að óhlýðnast lögreglu. Sem vafasamt er að hafi haft nokkurn rétt til að skipa þeim fyrir.
Þótt Hraunavinir hafi verið að mótmæla allt öðrum hlutum en mótmælendurnir sem mættu í Alþingshúsið 8. desember 2008, og þótt Hraunavinir séu ekki ákærðir fyrir tilraun til valdaráns, eru nokkur atriði sem minna á nímenningamálið svokallaða. Halda áfram að lesa
Viltu fá að éta? Mígðu þá í bauk.
Fyrir liggur úrskurður Persónuverndar um að félagsmálanefnd Fljótsdalshéraðs hafi ekki verið heimilt að krefja umsækjanda um fjárhagsaðstoð um þvagsýni. Halda áfram að lesa
Hanna Birna vill vita hvar Mörður fékk minnisblaðið
Í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag sagði innanríkisráðherra að minnisblað um tiltekna hælisleitendur samræmdist ekki neinum gögnum sem til séu hjá ráðuneytinu. Halda áfram að lesa
Þessvegna eru þetta trúnaðargögn, Sigurjón
Sigurjón Kjærnested var einn þeirra sem tóku til máls í umræðum um lekamálið í þinginu í dag. Sigurjón fullyrðir að ekkert hafi komið fram sem bendi til þess að gögnin hafi komið frá innanríkisráðuneytinu. Þetta er ekki rétt hjá Sigurjóni. Þvert á móti bendir ALLT til þess að gögnin komið þaðan. Halda áfram að lesa