Predikarinn Jón Valur Jensson hefur löngum staðið í heilögu stríði gegn mannréttindum samkynhneigðra. Nú bætir hann um betur og ræðst gegn kynskiptingum. Rök hans eru svo aum og óskynsamleg að ef hann væri tilbúinn til að leggja fordóma sína til hliðar eitt andartak, ætti hvaða kjáni sem er að geta leiðrétt mannfjandsamleg viðhorf hans.
En Jón Valur býður ekki upp á umræðu sem afhjúpar fordóma hans og oflátungshátt gagnvart fólki sem finnst það vera fast í röngum líkama. Hann bara lokar á frekari umræður þegar hann er kominn út í horn. Ekki þykir mér sæmd að því að ráðast á minnihlutahóp en loka svo á gangrýni. Ekki svo að skilja að ég hafi áhyggjur af þessu, því Jón Valur kemur upp um fordóma sína sjálfur. Mér finnst þetta bara svo hallærislegt.

