Löggan að útvega rasistum málsbætur. Er það annars venjan að löggan tjái sig um alvarleika brota? Ég hélt að það væri ákæruvaldið og þegar það á við dómstólar sem skæru úr um það.
Löggan að útvega rasistum málsbætur. Er það annars venjan að löggan tjái sig um alvarleika brota? Ég hélt að það væri ákæruvaldið og þegar það á við dómstólar sem skæru úr um það.
Það er enginn að gera lítið úr fötluðum með því að benda á hið augljósa, að fötlun skerðir möguleika fólks á að vera sjálfbjarga.
Ég ber mikla virðingu fyrir þinni baráttu fyrir réttindum fatlaðra og finnst þú stórkostlegur karakter. En ég er fegin að vera ekki í þinni aðstöðu og ég mér finnst jákvætt þegar tekst að ráða við sjúkdóma sem með tímanum valda fötlun. Mér þætti líka jákvætt að vilja koma í veg fyrir að ríkisútvarpið lamist. Lamist í þeirri merkingu að geta ekki sinnt hlutverki sínu, alveg eins og lamaður líkami getur ekki sinnt þörfum manneskjunnar sem hann hýsir.
Mér finnst alltaf dálítið súrt að þurfa að éta fullyrðingar mínar ofan í mig en þar sem ég vil ekki hafa það á samviskunni að eyðileggja aðventuna fyrir einhverjum tilkynnist hér með:
Það er rangt, sem ég sagði fyrir ca 10 dögum að Söru Bernhardtskökur séu ofmetnar. Það er Martha Stewart sem er ofmetin. Látið ekki hina satanísku uppskrift þessa útsendara eldhússdjöfulsins villa um fyrir ykkur. Þetta er ekkert mál, ég endurtek, ekkert mál, og ekkert svo tímafrekt heldur.
Þeir stóðu sig vel við erfiðar aðstæður. Kastljóssmenn. Halda áfram að lesa
Ég vil enga hugsanalöggu. En þegar trúað fólk minnist mín í bænum sínum, þá finnst mér það svona eins og ef einhver sem ég sef ekki hjá setur mig í runkminnið. Allt í lagi með það – en ekkert vera að tilkynna mér það.