Eva: Hljópstu? Alla þessa leið?
Ljúflingur: Ég er að passa línurnar.
Eva: Ég hefði með ánægju sótt þig.
Ljúflingur: Ég veit. Halda áfram að lesa
Greinasafn eftir:
Þjónustuver Satans
-Þú ert númer 12 í röðinni.
Ætli Þyrnirós sé að vinna hjá þeim?
Kannski spurning um að færa sig til Hive?
Hugvekja dagsins
Eldur getur leynst undir sinunni og blossað upp við smávegis vindkviðu. Það er óþægilegt, ógnvekjandi, stundum alveg skelfilegt. En ég þekki engan sem er svo glær að halda að eldur kvikni af sjálfum sér.
Í gær kveikti ég í vaxpottinum. Ég sjálf. Ég stillti helluna á hæsta hitastig og ráfaði svo burt. Ég hef vanið mig á að vera heppin (reykskynjarar færa manni t.d. mikla heppni) svo ég uppgötvaði það í tíma. Halda áfram að lesa
Morgunsárið
Mammon hefur greinilega vaknað í góðu skapi. Allavega er ég óvön því að súpa kálið áður en ég mæti til vinnu á morgnana. Gott mál að byrja daginn á því að fá óverðskuldaðan afslátt.
Við innakstur-bannaður-skiltið, húkir löggumann á mótorhjóli og skammar þá sem ætla að aka sömu leið og vanalega til að komast heim til sín. Hann var þar allan seinnipartinn í gær (eða kollega hans) og hlakkaði ákaflega í Lærlingnum andsetna yfir því hlutskipti. Eymingja löggan. Þetta hlýtur að vera leiðinleg vinna. Ef hann verður þarna ennþá kl 11 ætla ég að færa honum kaffi og bjóða honum að koma inn ef hann þurfi að pissa.
Einstefna
Lærlingurinn mætti yggldur á brún til vinnu í dag. Fannst það ekki toppmál hjá borgaryfirvöldum að hafa gert Vesturgötuna að einstefnugötu.
Vegfarendur létu sér almennt fátt um finnast og óku Vesturgötu í báðar áttir að vanda. Sjaldan hef ég séð einlægari gleði lýsa úr einu andliti. Líklega er hann andsetinn drengurinn.
Sprungan
Einu sinni fyrir löngu fékk ég stein í framrúðuna á bílnum. Fyrst kom hvellur og ég áttaði mig ekki á því hvað var að gerast. Svo sá ég lítið gat, og sprungu út frá því breiðast hægt yfir rúðuna. Ég vissi að ég gæti ekkert gert til að stöðva sprunguna, en ég stöðvaði bílinn. Halda áfram að lesa
Mammonsmessa
Mammonsmessa er sumsé málið. Þrátt fyrir ömurlega mætingu í kvöld, safnaðist aðeins 180 kr minna en allt síðasta ár.
Að vísu tóku aðeins örfáar hræður þátt í þessum fyrsta galdri sem ég frem í félagi við fleiri en einn.
Að vísu seldust ekki þeir hlutir sem ég vildi losna við (af skiljanlegum ástæðum).
Að vísu vill fyrsti arðlingur Mammons alls ekki láta nafns síns getið, hvað þá að láta hengja mynd af sér á altaristöflu.
Að vísu mætti bubbinn sem ætlaði að smala fjölda vel stæðra sjálfstæðismanna á staðinn, ekki sjá sig, hvað þá söfnuðurinn.
Skítt með það allt saman, hvert örstutt spor er áfangi og arðlingur fundinn.