Óskilamaður á leiðinni

Óskilamaðurinn er á leiðinni.
Mér skilst að hann ætli að fóðra mig í einu af þorpum Satans við ströndina. Ekki samt þar sem ég eldaði sjálf á sínum tíma.

Ég bjó í þessum sveitarfélagshundsrassi í rúm þjú ár. Ekki veit ég hvaða geðbilun fékk mig til að tolla þar svo lengi.

Einfaldlega

-Lokaðu búðinni og sinntu mér! sagði hann og þrýsti mér að sér.
-Þú fyrirgefur en þetta faðmlag jaðrar við að vera erótískt. Hvurslags ástsýki er eiginlega hlaupin í þig?
-Þú ætlar að hitta mann. Kannski er þetta síðasta tækifærið mitt til að vera hjá þér.
-Drottinn minn dýri! Ég ætla í bíltúr austur fyrir fjall. Með manni sem ég hef aldrei séð og veit ekkert um. Ætli við hittumst nú ekki aftur áður en ég gifti mig!
Halda áfram að lesa →

Fundarlaun fyrir réttan maka

Mig langar í mann og það er laugardagskvöld. Ætti ég þá ekki að vera á leiðinni út á lífið? Það er víst lítill tilgangur í því að kasta ástargaldri ef maður fylgir honum svo aldrei eftir.

Málið er að ég nenni því ekki. Mig langar í mann en ekki nógu mikið til að ég sé tilbúin til að leggja það á mig að fara inn á þá subbulegu og þrautleiðinlegu staði sem kallast skemmtistaðir. (Auk þess eru mennirnir sem ég hef áhuga á ekki þar, heldur einir heima hjá sér með góða bók eða bíómynd.) Halda áfram að lesa →