Það fyrsta sem Jarðfræðingurinn sagði þegar þau Byltingin komu heim eftir pílagrímsferðina var almáttugur. Var hún þar að vísa til hins Frjádagslega útlits sonar míns en hann hafði spáð því að ég myndi nota þetta orð til að lýsa því hvernig mér væri innanbrjósts. Það er reyndar alveg rétt að það var einmitt það sem ég ætlaði að fara að segja en hún varð andartaki á undan mér. Halda áfram að lesa
Greinasafn eftir:
Rósin
Jarðfræðingurinn kom snemma heim og var að hjálpa mér að lóða fram yfir miðnætti. Töluðum heilan helling saman og yfirvofandi leiðindum lauk á hálftíma. Nú er klukkan 7:09 og hún er þegar komin upp og situr nú í jógastellingu á búðargólfinu.
Það lítur út fyrir að ég hafi eignast bestu tengdadóttur í heimi.
Leiðindi
Byltingin er að vinna á Sólheimum, Jarðfræðingurinn að undirbúa ráðstefnu, Pysjan í Danaveldi, Lærlingurinn á Ítalíu, Anna á Spáni, Elías – það er nú eins og það er og Ljúflingur farinn heim að fóðra tíkina.
Ég hef andskotans yfirdrifið nóg að gera en nenni engu af því.
Mér leiðist.
Ég fann síðast fyrir þessari tilfinningu í ágúst árið 2000. Þá var ég fangavörður á Litla Hrauni. Leiðindin komust á alvarlegt stig en ég læknaði sjálfa mig af þeim með því að stofna til ástarsambands við einn fanganna. Það var ekki gott mál að leiðast of lengi.
Mín káta angist
Kæti mín hefur verið býsna sveiflukennd í morgun.
Byrjaði daginn á því að uppgötva að einhver fíkillinn hefur ekki getað stillt sig um að kveikja í eiturstöngli í lyftunni heima hjá pabba. Ég skilgreini reykingar í návist minni sem grófa líkamsárás og það er dálítið spes að finna öndunarfærin herpast saman en sjá ekki árásarmanninn. Ég veit að ég verð skrýtin á svipinn þegar fólk segir mér að illir andar hafi ráðist á það en þótt ég trúi því staðfastlega að vanlíðan þess eigi sér aðrar skýringar og veraldlegri, þá skil ég a.m.k. alveg hvernig því líður. Halda áfram að lesa
Auðleysanlegt vandamál
Þetta finnst mér snjallt svar. (Takk fyrir að benda mér á þetta Keli)
Ef ég hefði átt að svara þessu bréfi hefði ég sagt konunni að ég hefði fullan skilning á því hvernig henni liði en skilnaður væri ekki nauðsynlegur því það væri vel hægt að leysa vandamálið. Ég hefði ráðlagt henni að kaupa eitthvað fallegt í hans stærð og snyrtidót sem hentar hans húðgerð og gera honum svo fulla grein fyrir því að hennar eigið stöff væri ekki í boði. Það er auðvitað óþolandi þegar einhver sem er miklu stærri en maður sjálfur teygir skóna manns og nærfötin með því að troða sér í þau í leyfisleysi.
En mér finnst Miriam hafa svarað þessu betur.
Galdur á Jónsmessunótt
Kirkjugarður á Jónsmessunótt er öðrum stöðum galdravænlegri. Allavega þegar maður er óökufær af kristilegu blóðþambi. Við hittum reyndar hvorki Satan né anda hinna framliðnu en ég stjórnaði hópgaldri í fyrsta sinn og Egill (12 ára) og Grímur (14 ára) munu líklega seint gleyma því að hafa fengið að taka þátt í slíkri athöfn. Halda áfram að lesa
Lóg
There must be 50 ways to leave your lover
Ég held ekki. Allavega er engin góð leið til þess. Halda áfram að lesa