Glæpur múffukonunnar

Í fyrrasumar stóðu aktivistar fyrir norðan að skemmtilegu framtaki. Bökuðu helling af flottum muffinskökum og seldu í lystigarðinum. Fengu sjálfboðaliða til að vera með lifandi tónlist og gerðu úr þessu fjölskylduskemmtun. Söfnuðu 400.000 kr handa fæðingardeild sjúkrahússins. Nú í sumar ætluðu þessar duglegu konur að halda annan múffudag en þeim var bannað það. Vegna heilbrigðissjónarmiða, sko. Kaka bökuð í heimahúsi er nefnilega svo heilsuspillandi að það má ekki selja hana. Halda áfram að lesa →

Þegar Vestmannaeyjapakkið lagðist á velferðarkerfið

Ég var á 6. ári þegar ég fann í fyrsta sinn til samúðar með ókunnugum. Fram að því höfðu ókunnugir verið einhverskonar grár massi sem kom manni ekki við en nú allt í einu var raunverulegur áhyggjusvipur á foreldrum mínum og ég settist í fyrsta sinn niður við fréttatíma sjónvarpsins. Ég man að ég hugsaði að ég hlyti að vera orðin mjög stór fyrst ég væri að horfa á fréttirnar en líklega hafa liðið nokkur ár þar til annað fréttaefni vakti áhuga minn. Það var ekki ég sem var stór, heldur voru þetta stórfréttir. Halda áfram að lesa →

Lögfest mannréttindabrot

Enda þótt alþjóðlegir mannréttindasáttmálar tryggi rétt flóttamanna til að bjarga lífi sínu með því að villa á sér heimildir á meðan þeir eru að komast í öruggt skjól, skirrast íslensk stjórnvöld aldrei við að þverbrjóta þessi sjálfsögðu mannréttindi. Svo langt gengur viðbjóðurinn að þrátt fyrir að gæsluvarðhaldi megi aðeins beita þegar hætta er á að glæpamaður spilli rannsókn máls eða vegna þess að hann er álitinn hættulegur, er í lögum sérákvæði um útlendinga sem talið er að villi á sér heimlidir. (Sjá útlendingalögin 5. kafla, 29.grein.) Halda áfram að lesa →