Vesenið á þessum Gvuði

Fokk í helvíti. Þegar Gvuð birtist mér upp úr hádegi í dag og heimtaði að fá að opinbera mér sannleik sinn, benti ég honum á að blogga. Ætlaði sko ekki að fara að vera einhver senditík fyrir hann. Sagðist tilbúin til að veita honum aðgang að tölvu og geta hans á mínu bloggi, but that’s it.

Nú er hann búinn að hanga í tölvunni minni meira og minna í allan dag. Ef þetta verður svona áfram þá nenni ég ekki að hafa hann inni á gafli mikið lengur.

 

Best er að deila með því að afrita slóðina

One thought on “Vesenið á þessum Gvuði

  1. —————————

    Og nú vill hann þrísome. Áður var það faðirinn, sonurinn og hinn heilagi andi, nú á það að vera Eva, Jón Valur Jensson og Drottinn hersveitanna. Mér skilst að Jón Valur sé búinn að samþykkja. Ég sagði strax Nei en Gvuð virðist eitthvað andlega skyldur Friðrik Sófa og bara tekur ekki nei fyrir svar.

    Ég þoli ekki svona hópþrýsting.

    Posted by: Eva | 16.07.2008 | 21:49:15

    —   —   —

    Af hverju kemur þetta mér ekki á óvart.

    Ég þekki þessa fjölskyldu.

    Posted by: anna | 16.07.2008 | 22:17:07

Lokað er á athugasemdir.