Frænka mín var fórnarlamb mansals

skura

Ef þetta er eðlileg skilgreining á mansali, þá var Ásta Geirsdóttir föðursystir mín líka fórnarlamb mansals á meðan hún bjó á Borgarfirði eystra. Hún átti ekki kost á neinni vinnu nema í frystihúsinu og leiddist því út í fiskverkun. Henni þótti það ekkert skemmtilegt og það var vond lykt af henni þegar hún kom heim. Og fokk, var hún arðrænd, ójá. Allt löglegt að sjálfsögðu. Þrælahald er nefnilega í lagi ef það er löglegt.

Ef þetta er mansal þá var Angesjenka, pólsk stúlka sem vann hér ólöglega við hótelþrif fyrir nokkrum árum, einnig fórnarlamb mansals. Hún fékk þær upplýsingar hjá vinnuveitandanum að hann myndi redda henni atvinnuleyfi eftir að hún kæmi, þannig væru hlutirnir gerðir á Íslandi. Hún fékk aldrei atvinnuleyfið. Hún vann á unglingataxta og hluti af hennar ólöglega ráðningarsamningi hljóðaði upp á að hún hefði viðveru á hótelinu milli 11 á kvöldin og 7 á morgnana, hvort sem hún var á vakt eða ekki. Ferðafrelsi hvað?

Ég er ekki að segja að þessi skilgreining kunni ekki að eiga rétt á sér en ef manneskja verður þræll við það að taka eina starfinu sem er í boði eða við að vinna hjá vinnuveitanda sem brýtur gegn réttindum starfsmanna, þá þarf að taka til á fleiri stöðum en hjá Geira gullrassi. Ekki svo að skilja að ég sé eitthvað hrifnari af honum en öðrum mafíósum sem moka inn pening með því að láta aðra vinna störf sem þeir hafa aldrei sinnt sjálfir.

Ég vildi gjarnan sjá tiltekt í sem flestum stórfyrirtækjum, hvort sem þau gera út á kynhvötina, áfengsfíkn, hernaðarbrölt eða ímyndaða þörf mannsins fyrir hvers kyns drasl. Í mínum huga merkir þrældómur þó samt sem áður það að vera neyddur undir vald einhvers annars. Þræll getur ekki bara rölt sig niður í Alþjóðahús og fengið aðstoð. Vera kann að margar stúlkur séu tældar hingað á fölskum forsendum og gerðar út til kynlífsþjónustu gegn vilja sínum og er það skítt en hvorttveggja er auk þess saknæmt. Það er m.a.s. saknæmt að gera annað fólk út til kynlífsþjónustu með fullu samþykki þess. Hvernig í fjandanum stendur á því að þessum lögum er ekki framfylgt? Og til hvers er verið að setja fleiri lög sem gera stöðu þessarra kvenna mun erfiðari, í stað þessað ríkið sýni þá döngun að uppræta meinta mafíustarfsemi?

Ef nýju lögin ná framað ganga munu þau gera erlendum vændiskonum endanlega ófært að verða sér úti um viðskiptavini nema með milligöngu einhvers sem þekkir til hér og hefur sambönd í undirheimum. Rétt eins og vændiskonur í Svíþjóð munu þessar stúlkur missa þá viðskiptavini sem eru líklegastir til að virða reglur. Fautar og misyndismenn munu hinsvegar ekki láta stoppa sig. Tekjur þeirra munu einnig lækka til muna þar sem kúnninn þarf nú að taka áhættu og þær komast ekki hjá því að hafa hórmangara á bakinu. Tilgangurinn með þessum lögum er enda ekki sá að vernda mannréttindi þeirra, heldur er verið að nota mannréttindahugtakið sem yfirvarp til að setja lög um kynhegðun sem er yfirvöldum ekki að skapi. Á sama tíma og tepruskapurinn rekur yfirvöld til þess að skilgreina allar konur í kynlífsþjónustu sem fórnarlömb og sjúklinga og alla karla sem vilja sjá píkur sem glæpamenn, er flóttamönnum sem leita hingað til að forða sér frá lífsháska í heimalöndum sínum, sagt að éta það sem úti frýs. Afsakið mig meðan ég æli yfir vinstrigræna mannúðarhræsnina.

Í klám- og kynlífsgeiranum um heim allan finnast fórnarlömb. Rétt eins og í áliðnaði. Þar starfa einnig hundruð þúsunda af frjálsum vilja, rétt eins og í t.d. áliðnaði. Sumir eru sjálfstætt starfandi (ólíkt áliðnaði), aðrir vinna hjá misgeðslegum fyrirtækjum, stórum eða smáum. Sumir eru óánægðir í starfi, öðrum finnst þetta bara ágætt, rétt eins í áliðnaði. Það er ekki klám og kynlífþjónusta sem slík, sem er vandamálið, ekki frekar en áliðnaðurinn, heldur mafíumyndun og stórfyrirtækjavæðing, arðrán, spilling og valdníðsla. Upprætum þessvegna klámmafíuna. Upprætum líka Alcoa, Coca Cola og Bónusssvínin.

En fyrir alla muni hættum að leyfa ríkinu að reka fingurinn upp í hvers manns rass. Látum hóruna, nektardansmeyna og kaupmanninn á horninu í friði, sem og þeirra viðskiptavini. Fólk á nefnilega að fá að ráða því hvernig það framfleytir sér, svo fremi sem það skaðar ekki aðra. Þegar gilda í landinu lög gegn þrælahaldi og kynferðislegri kúgun. Þeir sem vilja hafa tekjur af lauslæti sínu fremur en að neyðast til að vinna hjá McDonalds, Alcoa eða öðru skítafyritæki, ættu því ekki að þurfa að berjast við björgunaraðgerðir ríkisvaldsins. Ríkisvalds sem aldrei hefur spurt viðföng þessarra björgunaraðgerða álits.

Deildu færslunni

Share to Facebook

One thought on “Frænka mín var fórnarlamb mansals

  1. —————————————————

    Eins og talað út úr mínum munni. Ég man eftir að hafa unnið viðbjóðsleg störf sem mér fannst niðurlægjandi meðan aðrir sem unnu við hliðina á mér voru sáttir. Ég held einmitt að það nákvæmlega sama gildi um vændi. Er mikill munur á því að þrífa mannaskít eða handrúnka graðnagla fyrir margfalda þá upphæð sem þú færð fyrir þrifin?

    Posted by: GGunnarsson | 20.03.2009 | 18:01:09

    Ég get ekki verið meira sammála þessu hjá þér, það er eins og það sé bara horft í þessa örfáu sem leita til stigfamóta eð hvert svo sem þeir leita út af því að þær lifa í svo mikkilli skömm að hafa leiðst út í vændi mér finnst miklu betra að lögleiða þetta bara eins og í Hollandi og skylda þá sem eru í vændi að fara þá reglulega í tékk með kynsjúkdóma og hafa þetta upp á yfirborðinu þannig að það sé hægt að fylgjast með vændinu ekki koma því aftur „underground“

    Posted by: Geirsson | 20.03.2009 | 19:52:22

    Það er eflaust slatti af stúlkum sem vinna við þetta af nokkurn veginn fúsum og frjálsum vilja, þ.e. þær velja þetta frekar en einhver illa launið skítadjobb. En klámiðnaðurinn vekur mér alltaf óhug samt, það er margt mjög viðbjóðslegt í gangi, í það minnsta hér á meginlandinu, sem getur auðveldlega flokkast undir mansal og misþyrmingar, þetta er klaufalega orðað hjá Margréti (eða rangt haft eftir, annað eins hefur nú gerst).

    Posted by: Kristín | 21.03.2009 | 6:53:04

    Ég lauk ekki alveg við hugleiðingar mínar. Ég held að það sé til fullt af fólki sem lifir ágætu lífi þrátt fyrir að vinna skítadjobb fyrir risafyrirtæki. Ég hef alveg séð kassadömurnar hjá Carrefour úti í smók. Þær eru kátar þar, grínast sín á milli. Ég er viss um að þær halda reisn sinni, gagnvart sjálfum sér og þjóðfélaginu (já, klisja bla bla bla) og að það er m.a. af því þær geta sagt sér að þær lifi heiðvirðu lífi. Lífsgildin og það allt skipta nefnilega töluverðu máli fyrir fólk sem hefur fengið nokkuð heilbrigt uppeldi. Fordómar gagnvart vændi er hlutur sem vændiskonan hefur sjálf og þarf að díla við (líkt og margir samkynhneigðir þurfa að gera, tja, eða þunglyndissjúklingar). Ég held að það sé stór hluti af málinu.
    Hins vegar er ég sammála þér: Burt með helvítis auðvaldshringamyndunina!

    Posted by: Kristín | 21.03.2009 | 6:59:51

    Ég er sammála þér Kristín. Það er til fullt af fólki sem lifir ágætu lífi á því að vinna fyrir skítafyrirtæki, t.d. einhvern skíta klámframleiðandann. Frjálsar stelpur í klámgeiranum eru nefnilega líka kátar og grínast sín á milli. Auðvitað er óþægilegt að vera utangarðs og það upplifa þessar konur (og karlar)eins og allt jaðarfólk. En þær halda reisn sinni gagnvart sjálfum sér, af því að þær álíta að það sé eitthvað að samfélagi sem fordæmir þær en ekki þeim sjálfum. Og þær þurfa enga reisn að verja gagnvart fólki sem veit ekki um hvað það er að tala.

    Fordómar munu alltaf þrífast. Fólk sem í atvinnu- eða einkalífi ástundar eitthvað það sem rekst á við þau lífsgildi sem eru ríkjandi í samfélaginu á hverjum tíma, verður fyrir fordómum og þarf að takast á við þá hjá sjálfu sér en hvort lífsgildin eru endilega heilbrigð er ekkert gefið. Er t.d. eitthvað heilbrigt við þá hugmynd að fólk megi ekki særa blygðunarkennd annarra með því að velja sér maka af sama kyni? Getur verið að það sé heilbrigðara viðhorf að hver og einn eigi að fá að sjá sér farborða á þann hátt sem honum bara sýnist, en að þjóna siðferðishugmyndum annarra?

    Posted by: Eva | 21.03.2009 | 9:37:30

    Já, það er miklu heilbrigðara og ég held að svona hræsnislausnir séu bara til að sökkva þessu dýpra ofan í neðanjarðarheima og geri lítið gagn og jafnvel ógagn því alvöru fórnarlömbum veitist erfiðara að fá aðstoð.

    Posted by: Kristín | 21.03.2009 | 16:41:13

    Ég er sammála þér Eva, þrælahald og ofbeldi er bannað. Ég skil ekki hvernig það á að ganga upp að banna sjálfráða fólki að láta ríða sér fyrir pening.

    Posted by: Þórdís | 21.03.2009 | 18:52:15

    Frábær skrif hjá þér Eva og ég gæti ekki verið meira sammála og æðislegt að þú notir orðið „tjása“ í staðin fyrir „athugasemd“ þetta orð byrjaði ég að nota fyrir 8 árum í staðin fyrir „athugasemd“ eða „ummæli“ enda er maður að tjá sig 😀

    Posted by: Sævar | 23.03.2009 | 16:20:54

    Það er ekki oft sem maður sér svona skrif á netinu, góð grein og gaman að sjá að það er til fólk sem kann að hugsa.

    Posted by: Halldór | 24.03.2009 | 16:00:25

    Frábær grein hjá þér Eva og ágætar tjásur líka. Það er ekki oft sem maður sér skirfað svona hreint og beint um málefnin án þess þó að það virki dónalegt.
    Ég mun sakna þín Eva

    Posted by: Ragnar | 26.03.2009 | 13:19:59

    Ég dái þig

    Posted by: G | 27.03.2009 | 20:38:52

Lokað er á athugasemdir.