Þessvegna eru þetta trúnaðargögn, Sigurjón

sigurjónSigurjón Kjærnested var einn þeirra sem tóku til máls í umræðum um lekamálið í þinginu í dag. Sigurjón fullyrðir að ekkert hafi komið fram sem bendi til þess að gögnin hafi komið frá innanríkisráðuneytinu. Þetta er ekki rétt hjá Sigurjóni. Þvert á móti bendir ALLT til þess að gögnin komið þaðan. Halda áfram að lesa →

Það mjakast

Ég er ekkert óvön því að tilheyra minnihluta. Ég vil Ísland úr Nató það þykir kannski dálítið hallærislegt en maður er ekki álitnn beinlínis klikkaður út á það. Ég vil að flóttamenn njóti mannréttinda og hef verulegar áhyggjur af uppgangi nýnazisma, það þótti sérviskulegt fyrir 8 árum en í dag er ég sennilega í meirihluta. Halda áfram að lesa →

Ekki ein af strákunum heldur stelpan í hópnum

soffia
Soffía Anna Sveinsdóttir tók stúdentspróf af félagsvísindabraut. Ekki af því að hún hefði sérstakan áhuga á félagsgreinum, heldur af því að hún átti erfitt með stærðfræði. Að loknu stúdentsprófi bjuggust vinir hennar og vandamenn við að hún færi í íslenskunám. Það kom því flestum á óvart þegar hún hóf þess í stað nám í pípulögnum. Halda áfram að lesa →